Lífsýni í Álverinu í Straumsvík
Ég skil ekki fjaðrafokið út af þessu máli. Það ætti að vera hagsmunamál starfsmanna álversins að fyrirtækið sjái til þess að menn séu edrú í vinnunni. Þarna er verið að vinna á stórum vinnuvélum með stórhættuleg efni og því mikilvægt að menn séu alsgáðir. Ég get hins vegar verið sammála því að ákvæðið í ráðningasamningnum er illa orðað og þarf frekari útskýringar við. Þarna er fyrirtækið raunverulega að áskilja sér þann rétt að krefjast þess að menn séu alsgáðir í vinnunni og bjóða mönnum því upp á blóðsýni á vegum fyrirtækisins. Annar kostur væri sá að koma aftan að mönnum sem taldir eru undir áhrifum vímuefna með því að boða lögreglu á staðinn til að heimta blóðsýni því ég geri ráð fyrir að lög um ölvun við akstur gildi jafnt innan sem utan álversins. Álverið er því raunverulega að bjóða mönnum leið til að missa aðeins vinnuna en ekki bílprófið sitt líka ef upp kæmist að þeir væru undir áhrifum.
Einhvern veginn held ég að fyrir stjórnendum fyrirtækisins vaki ekki að rannsaka lífsýnin frekar nema ef til kemur ósk starfsmannsins. Slík lífsýnataka er alvanaleg í stórfyrirtækjum erlendis og þjónar þá yfirleitt hagsmunum bæði einstaklingsins og fyrirtækisins. Fyrirtækið útilokar að einstaklingurinn sé undir áhrifum ólöglegra efna og í staðinn fær starfsmaðurinn ókeypis læknisskoðun með reglulegu eftirliti. Slíkt hefur sennilega margoft bjargað mannslífum, þegar sjúkdómar uppgötvast snemma, áður en þeir verða ólæknandi.
Ég tel einnig að, alveg eins og ekki má skerða rétt einstaklinga til sjálfsákvörðunarréttar um eigin heilsu og meðferð eigin lífsýna, þá megi heldur ekki skerða rétt fyrirtækja til að gera ákveðnar kröfur um líkamlegt og andlegt atgervi starfsmanna sinna með þeim sjálfsagða fyrirvara að þær séu rökstuddar haldbærum rökum.
Eftir stendur þó bjánalegt orðalag sem mætti breyta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli