Boltinn
Er að stelast til að horfa á mína menn í Meistaradeildinni því ég er búinn að vera svo duglegur að lesa síðustu daga. Líst ágætlega á þetta. Staðan er 1-0 fyrir mína menn, Scholes sett’ann og þeir eru m.a.s. búnir að skora annað fullkomlega löglegt mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Vonum bara að þeir klári dæmið í seinni hálfleik.
Jafnrétti til náms...
...er að rukka 30000 kall fyrir árið í Háskólanum en milljónkall fyrir meirapróf.
Ljós-Gíslinn mælir með...
...geisladisknum O með Damien Rice, uppáhaldsdiskurinn minn þessa dagana en ég fékk hann í jólagjöf frá Thoroddsen.
...Master & Commander með Russel Crowe sem ég sá um helgina, góð mynd.
...We Were Soldiers með Mel Gibson sem er ein átakanlegasta stríðsmynd sem ég hef séð.
...Pirates of the Caribbean með Johnny Depp, Orlando Bloom og Keiru Kneightley – Orlando fyrir stelpurnar og Keira fyrir strákana.
Topp tíu popp/rokkgeisladiskar í eigu Geislans í engri sérstakri röð
Brothers in Arms með Dire Straits,
O með Damien Rice,
A Rush of Blood to the Head með Coldplay,
Parachutes með Coldplay,
All that You Can’t Leave Behind með U2,
Achtung Baby með U2,
Megas með Megasi,
Document með REM,
Galore með Cure og
Sailing to Philadelphia með Mark Knopfler
Tíu bestu myndir sem Geislinn hefur séð í engri sérstakri röð
Forrest Gump með Tom Hanks, Robin Wright, Gary Sinise, Sally Field o.fl.
Deer Hunter með Robert De Niro, Christopher Walken, John Savage og Meryl Streep
Kramer vs. Kramer með Dustin Hoffman og Meryl Streep
The Shawshank Redemption með Tim Robbins og Morgan Freeman
The Pianist með Adrian Brody
Scent of a Woman með Al Pacino og Chris O’Donnell
La Vita e Bella með Roberto Benigni og Giustino Durano
One Flew Over the Cuckoo’s Nest með Jack Nicholson og Louise Fletcher
As Good as it Gets með Jack Nicholson, Helen Hunt, Greg Kinnear og Cuba Gooding jr.
The Godfather með Marlon Brando, Al Pacino, Robert Duvall, James Caan o.fl.
...og svo þessar sem komust næstum á listann...
Braveheart með Mel Gibson, Sophie Marceau o.fl.
Schindler’s List með Liam Neeson, Ralph Fiennes o.fl.
Rain Man með Tom Cruise og Dustin Hoffman
American History X með Edward Norton og Edward Furlong
Saving Private Ryan með Tom Hanks, Tom Sizemore, Matt Damon o.fl.
The Bridge on the River Kwai með Alec Guinness, William Holden og fleirum
Guð minn almáttugur!!!
Porto jafnaði í lokin og þar með er tímabilið búið hjá MUFC. Best að pakka bara niður og búa sig undir næsta vetur. Eftir stendur þó að MUFC gerði fullkomlega löglegt mark sem var dæmt af. Kannski hefði leikurinn þróast öðruvísi ef það mark hefði staðið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli