Scent of a Woman
Myndin er á Skjá einum í þessum töluðu orðum. Ég var búinn að gleyma hvað Al Pacino var snilldarlegur í þessari mynd. Hann átti svo sannarlega skilið að fá Óskarinn fyrir leik sinn í þessari mynd. Hann verður alltaf í miklum metum hjá mér og þegar maður horfir til baka þá eru óteljandi myndirnar sem hann hefur verið brilliant í. Scarface var snilld. Í Serpico var hann frábær og í Guðföðurmyndunum líka að sjálfsögðu. Al Pacino er maðurinn!!!
Önnur mynd sem var á topp tíu listanum er myndin Kramer vs. Kramer (Pacino var reyndar ekki í henni). Fæst ykkar hafa líklega séð hana en ég mæli með því að þið takið hana einhvern tíma á leigunni. Munið nafnið því þið verðið ekki svikin af þessari mynd. Dustin Hoffman leikur hotshot businessmann sem er kvæntur óhamingjusamri konu og á með henni ungan son. Einn daginn yfirgefur konan hann en skilur soninn eftir. Myndin fjallar svo um samband þeirra. Meryl Streep leikur eiginkonuna og Justin Henry sem lék soninn er líklega yngsti karlmaðurinn sem tilnefndur hefur verið sem leikari í aukahlutverki. Hann var sjö ára þegar myndin var tekin og á algeran leiksigur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli