Æfing!
Mætti á mína fyrstu æfingu hjá Dufþaki í gær. Stóð mig held ég ágætlega, lagði upp nokkur mörk og skoraði eitt sjálfur. Sjáum til hvort mér verður boðið að sækja aðra æfingu. Mér leist annars ágætlega á hópinn. Svolítið af gömlum jöxlum í bland við unga og spræka (misspræka þó). Stefnt að æfingaleik þann 4. apríl þannig að þá sér maður hvernig liðið virkar. Kannski maður fái að hlýja bekknum.
Þorgeir...
...er með einhvern kjaft og þykist hafa "vit" á tónlist. Ekki man ég til þess að Þorgeir hafi neinn sérstakan smekk í tónlist. Einu skiptin sem ég hef heyrt hann tala um tónlist er þegar hann fjargviðrast út í lélega tónlist á "fóninum". Ekki það að ég hafi sérstakt "vit" á tónlist eins og margir þykjast hafa. Hlusta bara á það sem mér finnst skemmtilegt og er yfirleitt ekki að láta það trufla mig þó öðrum finnist það halló. Hlustaði t.a.m. á Bob Marley þegar allir félagar mínir nema Gunni og Haffi hlustuðu á Death og Rapp. Þeir félagarnir hlustuðu á Queen. Síðan þegar ég var kominn í menntó var ég nú aðeins farinn að fíla U2 og REM sem voru vinsælir þá en hlustaði jafnhliða á Bogomil Font og Gling Gló með Björk. Tónlistarsmekkur er nefnilega nákvæmlega það, smekkur, og enginn getur því sagt að eitthvað sé lélegra en annað. Margir hafa sagt að sú tónlist sem er á boðstólnum í dag sé miklu óvandaðri en það sem áður var en menn verða að átta sig á að fæstir snillingar í tónlist fortíðarinnar hafa vera metnir að verðleikum af fjöldanum á sínum tíma. Yfirleitt voru það aðeins örfáir sem áttuðu sig á snilli manna á meðan þeir lifðu. Mín kenning er því sú að góð tónlist sé afstætt hugtak. Hver verður að ákveða fyrir sig hvað honum finnst skemmtilegt og fyllandi að hlusta á.
Ég er þeirrar blessunar aðnjótandi að vera það sem kallað er alæta. Ég get setið við lestur í einn dag, byrjað með Azhkenazy að spila Rachmaninov, skipti síðan yfir í O með Damien Rice en þegar hann hefur gengið sinn gang set ég Gling Gló með Björk á fóninn. Þegar fer að líða að kvöldi set ég kannski Dave Brubeck á og slæ síðan botninn i daginn með svolitlu af John Williams, besta klassíska gítarleika sögunnar, að mínu mati.
Staðhæfingu Þorgeirs um að Eurovisionlagið sé lélegt vísa ég því beint til föðurhúsanna. Föðurlegar staðhæfingar um að maður hafi rangt fyrir sér varðandi tónlist er eins og að reyna að kenna samkynhneigðu fólki að elska einhvern af hinu kyninu. Ekki aðeins bjánalegt heldur ber það vott um virðingarleysi gagnvart skoðunum og tilfinningum annarra. Vendu þig af þeim ósið Þorgeir.
Á fóninum
Þetta er hugtak sem ég held að eigi eftir að haldast í íslensku þrátt fyrir að grammófónar heyri brátt sögunni til. Það þýðir að við sem nú erum í barneign eigum eftir að þurfa að útskýra fyrir börnunum okkar hvað í fjandanum það þýðir að vera á fóninum. Skemmtilegt hvernig sagan gerir hugtök úrelt séu þau tekin bókstaflega en við mennirnir lærum að nota þau í öðrum tilgangi og höldum þeim þannig gagnlegum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli