21. mar. 2004

Eurovisionlagið...
...var frumflutt hjá Gísla Marteini í gærkvöldi og verð ég að segja að mér finnst það bara fjandi gott. Jónsi stendur sig bara vel, syngur þetta af krafti og innlifun. Ég held nú samt að við séum ekki að fara að vinna þetta með þessu lagi en við fáum örugglega nokkur stig. Áfram Jónsi!!!

Dr. Gunni...
...tróð upp í þessum þætti líka. Guð minn almáttugur hvað hann er ömurlegur tónlistarmaður. Lögin voru léleg og hann söng þau eins og einhver górilla. Mér finnst alveg merkilegt að leyfa svona ógeð í RÚV. Líklega er það rétt sem sagt er um gagnrýnendur að þeir velja sér starfið af örvæntingu yfir að geta ekkert sjálfir.
Í sama þátt kom greyið litla hún Sif umhverfisspjallaráðherra sem ég hef alltaf látið fara í taugarnar á mér og það breyttist ekkert í gær. Mér finnst hún alltaf vera eitthvað svo upptekin af því að gera mikið úr sjálfri sér.
Síðan kom Björn Jörundur Friðbjörnsson sem ég held bara að sé orðinn fullmarineraður í undarlegheitunum. Rak útgerð í Brasilíu my ass!!! Ég held hann hafi verið að temja þessar brasilísku og reykja eitthvað annað en njóla þarna suðurfrá.

Tveir nýjir diskar í safnið
Fjárfesti loksins í OK computer með Radiohead og finnst hann ágætur. Á eftir að hlusta á hann almennilega en ætli maður þurfi ekki að pæla aðeins í honum áður en maður kann almennilega að meta hann.
Hinn diskurinn er "Swinging When You're Winning með Robbie Williams sem er frábær ef maður fílar svona swingtónlist. Þetta eru dægurlög 5. og 6. áratugarins og eru mörg hver alveg hrikalega skemmtileg. Þarna var mikið lagt upp úr röddum og tónlistin var kannski meira svona undirspil. Hann er fæddur á röngum áratug drengurinn. Syngur þetta snilldarlega.

Engin ummæli: