21. ágú. 2003

Var búinn að skrifa langt blogg en það eyddist. Nú nenni ég ekki meir og er farinn að sofa.

18. ágú. 2003

Helgin...
...var fín. Byrjaði með tiltölulega rólegri vakt á föstudaginn en síðan kom ég heim á laugardaginn og horfði á mína menn taka Bolton í litla kennslustund í því hvernig maður á að kaupa unga leikmenn. Nánar að því á eftir. Síðan var tekinn "smá" göngutúr. Við Edda lögðum efst í Stórholtinu þar sem móðursystir hennar á heima og löbbuðum alla leið niður í miðbæ. Þar skoðuðum við meðal annars háskólasalinn í gamla Top Shop húsinu þar sem vinnufélagi Eddu var að syngja í hljómsveit og Króatinn var að segja hvernig vetnisrafall virkaði. Labbaði síðan nokkra hringi í miðbænum og lenti á endanum inni í fornbókabúðinni Gvendi dúllara og keypti mér tvær vel með farnar Laxness-bækur í safnið. Það var endurminningabókin Í túninu heima og ritgerðasafnið Upphaf mannúðarstefnu. Var reyndar svolítið svekktur því mig minnti að ég ætti Kristnihaldið en þegar heim kom sá ég að svo var ekki. Það var nefnilega nánast ósnert eintak af henni þarna sem hefði verið 1200 kallsins virði. Bendi þeim sem hafa áhuga á slíkum bókmenntum að maður getur fengið mjög vel með farin eintök á þriðjungi af því sem þau kosta ný.
En hvað um það. Við héldum síðan heim á leið því til stóð að Þór og Íris og Króatinn kæmu í grill. Við grilluðum snilldarlega borgara að hætti hússins og drukkum svolítið með því. Síðan fór Ingvar í bæinn samferða Þór og Írisi sem voru á heimleið en við Edda töltum á leiguna og leigðum þá úrvalsræmu Gangs of New York. Eitthvað rámar mig í að annað hvort Þorgeir eða Önni hafi verið að kvarta undan byssuleysi í bardögunum en það kemur einmitt fram í myndinni að klíkurnar gerðu með sér samkomulag um að nota slík vopn ekki. Lewis og DiCaprio voru góðir og Diaz var skárri en vanalega. Gef myndinni 3 bolta (sjá að neðan).
Á sunnudaginn var ég síðan rifinn upp kl. 9 til að fara með pabba í bíltúr austur fyrir fjall að sækja hesta og heimsækja vinafólk okkar. Það var ekki það ég vildi ekki fara heldur er ég ekki sérstaklega sprækur morguninn eftir hálfa rauðvín. Ferðin var hin ágætasta og við vorum komin í bæinn í tæka tíð til að sjá Chelsea taka Liverpool á Anfield sem var gaman. Síðan vorum við boðin í mat hjá settinu í gærkvöldi þar sem grillaður var dýrindis svínahnakki. Edda fékk makeover í kaupæti og bara allir sáttir.

Einkunnagjöf
Er að spá í að taka upp mína útgáfu af einkunnagjöf hér á síðunni þar sem gefnar verða einkunnir fyrir allan djöfulinn. Mun kerfið virka þannig að gefnir verða 0-5 boltar fyrir frammistöðu. Kerfið verður kannski þróað frekar síðar.

Manchester United vs. Bolton
Mínir menn voru nú ekki mjög sannfærandi í þessum leik og það verður ekki sagt að 4-0 sigur hafi verið sanngjörn úrslit. 2-0 hefði kannski verið nær lagi. Það var hins vegar undrabarnið Ronaldo sem var fegurð dagsins því leikur United lifnaði allur við þegar hann kom inn á og þó það sé kannski fullmikið sagt að hann hafi átt þátt í mörkunum þá var það nú samt þannig að hann opnaði leikinn fyrir United og skapaði plássið sem þurfti til að skora mörk. Ég held hann verði stjarna en ég sakna samt Verons. Hann er snillingur. Mínir menn fá 3 bolta fyrir góðan endasprett. Ef ekki hefði verið þessi endasprettur og leikurinn hefði endað 1-0 þá hefði ég gefið þeim einn bolta.
NIÐURSTAÐA: 3 boltar.

11. ágú. 2003

Jæja!!!
Þá er byrjuð ný vika. Ég á bara þrjár vikur eftir í vinnunni og get ekki beðið eftir að skólinn byrji. Ég er búinn að vinna svolítið stíft síðustu vikurnar og ég er orðinn frekar þreyttur á þessu en maður verður víst að venja sig við þetta því svona tarnir eru það sem koma skal hjá manni.

Samfélagsskjöldurinn
Ánægður með mína menn í gær. Fannst þeir spila vel og voru betra liðið á vellinum. Dómarinn var úti að steikja í gær. Fyrst sleppti hann Ashley Cole með viðvörun fyrir að sparka í Ole Gunnar Solskjær þegar hann hefði átt að gefa honum beint rautt eða að minnsta kosti annað gult spjald. Síðan hætti hann að vera skv. sjálfum sér þegar hann gaf Scholes gult fyrir svipað brot. Síðan fór Phil Neville í þessa ljótu tæklingu sem verðskuldaði nú alveg gult á góðum degi en dómarinn ákvað að sleppa honum við það. Jeffers var hins vegar ekki sáttur og sparkaði í bæði hausinn og lappirnar á Phil og fékk fyrir vikið rauða spjaldið. Örstuttu seinna tók Djemba svolítið vilt skot og það vildi þannig til að skotfóturinn fór í lærið á Sol Campbell. OK kannski var Djemba ekkert að reyna að sleppa við Campbell og það hefði alveg mátt veifa gula spjaldinu á hann en Campbell sparkaði í rassinn á Djemba í staðinn og átti að sjálfsögðu líka að fá rautt. Það er því kannski hægt að segja að þetta hafi jafnast út. Scholes og Neville hefðu getað fengið rautt en Campbell og Cole áttu tvímælalaust að fá rautt. Það hefði verið magnað að sjá 5 rauð í Samfélagsskyldinum sem á nú að heita vináttuleikur.
Annars var ég ánægður með Scholes sem mér fannst besti maður vallarins en það er ekki hægt að horfa fram hjá frammistöðu varnarinnar hjá United sem var frábær í leiknum sem og Keane sem var aftur kominn í gamla formið sitt og pakkaði saman Vieira á miðjunni. Howard varði síðan vel í vítaspyrnukeppninni og stimplaði sig vel inn í liðið.

6. ágú. 2003

Sorg!
Fíflið hann Ferguson hefur ákveðið að selja Seba Veron. Hversu mikið fífl getur maðurinn verið. Hann er búinn að selja besta miðjumanninn sinn nokkrum dögum áður en hann spilar fyrsta leikinn á tímabilinu. Það er eiginlega orðið of seint að kaupa nýjan leikmann. Ég hafði enga trú á því að hann seldi Veron úr því að við fengum ekki Ronaldinho en sumir eru greinilega búnir að missa það. Ég vona bara að þeir gangi frá einhverjum alvöru kaupum á næstu vikunni því annars fer titillinn fyrir lítið held ég. Þá er kannski eina vonin okkar að þessi Darren Fletcher brilleri og verði einhver stjarna. Ég mun gráta mig í svefn í kvöld.

4. ágú. 2003

Ferðasaga, brúðkaup og fleira skemmtilegt
Nú hef ég ekkert bloggað í rúman hálfan mánuð og þetta gengur ekki lengur. Það sem hefur drifið á daga mína síðan þá er töluvert. Í vikunni eftir síðustu færslu slóst í ég í för með foreldrum mínum, bræðrum og fjölskyldum þeirra í hestaferð um há- og láglendi Suðurlands. Var ek í för þeirri frá þriðjudagseftirmiðdegi og fram á föstudag þegar við héldum til Reykjavíkur á vit ævintýranna. Hestaferðin var yndisleg. Við gistum fyrstu nóttina í Smáratúni í Fljótshlíð sem er svolítið vestan við Hlíðarenda. Daginn eftir riðum við inn að Einhyrningi þar sem er gangamannakofi en fyrir ókunnuga er þetta á vestari bakka Markarfljóts aðeins innan við þar sem Húsadalsskálarnir eru á eystri bakkanum. (Vá þetta var flókið). Daginn eftir riðum við svo í grenjandi rigningu upp með og oft yfir Markarfljót og enduðum um kvöldið í Landmannahelli sem er rétt við Heklu og Dómadalsleið. Það var síðasta nóttin okkar Eddu í ferðinni því við höfðum afráðið að fara föstudaginn 25. júlí í bústað með félögum mínum úr Garðabænum. Þegar allt kom til alls treystum við okkur til að fara það kvöld og höfðum það notalegt í Hólmgarðinum um kvöldið en fórum síðan upp úr hádeginu í bústað sem Skutullinn hafði útvegað á Hvítárvöllum í Borgarfirði þar sem hann og bróðir hans stunda þá miður karlmannlegu iðju að sussa á fiska allan daginn. Við sem vitum hvað karlmennska snýst um kneyfuðum öl og grilluðum ket. Þorgeir og Önundur komu tómhentir heim og Hrefna eldaði handa þeim dýrindis grill. Þorgeir horfði reyndar á ketið grillast en allir viðstaddir vita að Hrefna átti heiðurinn. Síðan var brennt í bæinn á sunnudeginum eftir vel heppnaða ferð. Vikan fór síðan að mestu í vinnu og veikindi því aldrei þessu vant tókst mér að verða veikur á fimmtudaginn. Ég er nú ekki enn búinn að jafna mig en hafði þó heilsu til vinnu á föstudag og hélt síðan mikla teiti um kvöldið þar sem Garðbæingum var boðið að skoða hýbýli okkar Eddu. Eitthvað var mætingin dræm en þar var góðmennt að vanda. Síðan var brúðkaup hjá Möggu og Christian á laugardagskvöldið sem tókst með ágætum og fá þau þúsund hamingjuóskir frá okkur Eddu. Á sunnudaginn löbbuðum við síðan úr Hólmgarðinum í Eskihlíðina til að sækja bílinn og svo var farið í að mála Nesbala 2 þar sem bróðir hennar Eddu hefur nýverið fest sér forláta raðhús. Síðan var tengdó boðið í pasta í gær og í dag á ég síðan vaktina í Keflavík en hún hefur verið fremur róleg framan af. Líklega glæðist þó eitthvað með kvöldinu þegar liðið fer að skríða heim úr útilegunni.

18. júl. 2003

Jæja!
Nú hef ég ekki bloggað í hartnær 20 daga og þessari eilífu þögn verður að ljúka... en ekki núna. Get þó sagt tryggum sörferum að ég hef lokið við innréttingar í Hólmgarðinum og ráðgeri að flytja inn með spúsu minni í dag. Því er öllum sem ég þekki frjálst að hringja eða koma í heimsókn næstu vikurnar að því gefnu að það sé á skynsamlegum tíma sólarhringsins. Ætli maður taki það ekki rólega næstu dagana. Klári að koma sér fyrir og kaupa mat í búið. Sjáum svo til hvernig gengur hjá okkur í sambúðinni. Ég held að það eigi eftir að ganga glimrandi vel.

30. jún. 2003

Fyrsta færslan á nýrri og glæsilegri tölvu
Nú hefur Nonni bróðir fært mér glæsilega tölvu frá landi tækifæranna. Um er að ræða stórglæsilega Toshiba tölvu sem er 2,2 GHz, 512 Mb innra minni, 60 Gb harðan disk, DVD, CD, brennara og ég veit ekki hvað og hvað. Tölvan hefur verið prufukeyrð í dag og til dæmis er hún um það bil 2 mínútur að setja heilan 60 mínútna disk á tölvutækt form en gamla tölvan hefði gert það á svona 60 mínútum eða svo. Síðan er hún svo fallega blá á litinn. Davíð verður ánægður með það.

Helgin...
...var rosaleg en þá var farið í ferð með Herraklúbbnum Hannesi en atburðir ferðarinnar eru að sjálfsögðu algert trúnaðarmál. Það eina sem ég get sagt er að ég held að ferðin hafi þjappað félagsmönnum vel saman. Helgin var alla vega bæði eftirminnileg og skemmtileg.

25. jún. 2003

Heiðar tjóðraður
Æsir hefðu líklega kosið að Fríða væri ásynja þegar tjóðra átti Fenrisúlf því henni hefur tekist það sem austurískum meyjum tókst ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, þ.e. að fá Heiðar á skeljarnar. Fríða er kostakona og sennilega allt of góð fyrir Heiðar kallinn (og þó, hann er nú ágætur). Ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju og vona að þeim vegni vel í Nottingham næsta vetur. Nú er maður næstum kominn með skothelda afsökun til að fara á leik í Englandi á næstunni :)

Uppfærslur
Þau leiðu mistök urðu við uppfærsluna að öðlingurinn Gunnar Thoroddsen missti linkinn sinn. Úr því hefur verið bætt auk þess sem nokkrir skemmtilegir linkar hafa bæst við. Nú er bara að finna út hvernig maður minnkar letrið á póstunum og minnkar breiddina á spássíunni þarna =>

24. jún. 2003

Jæja!
Loksins tókst mér með hjálp góðra manna að laga aðeins síðuna en hún hefur tekið töluverðum breytingum eins og þið sjáið og þarf svolítið viðhald í viðbót en það mun verða gert næstu daga. Læt betur í mér heyra á næstunni.

21. jún. 2003

Blogger drusla!!!

16. jún. 2003

Áfram Ísland!!
Eftir fremur dapurlegan leik á móti Færeyjum tóku strákarnir okkar sig saman í andlitinu og lögðu Litháa sannfærandi í síðustu viku. Eiður var snillingur í leiknum og hélt síðan upp á glæsilega framgöngu sína á Hverfisbarnum á laugardaginn þar sem hann hösslaði konuna sína. Hermann gerði líka heiðarlega tilraun til að myrða markvörð Litháa en sem betur fer tókst honum að forða sér og boltinn endaði í netinu.

Helgin...
...var rosaleg. Hún byrjaði með erilsamri vakt á föstudag og síðan var tekið á því í Sporthúsinu með Golla. Við tókum fjóra skvass leiki og í stuttu máli þá hefðu samanlögð stig mín úr þeim öllum ekki dugað til að sigra tvo leiki: 15:7, 15:10, 15:2 og 15:5. Þess ber að geta að Ingólfur er bæði í betra formi en ég og fyrrverandi landsliðsmaður í spaðaíþrótt en það var samt súrt að tapa fyrir honum. Síðan var tekið á því í tveimur útskriftarveislum á laugardagskvöldið. Fyrst var sótt heim Vala vinkona hennar Eddu sem var að ljúka námi sem leikskólakennari og síðan var Heiðar hinn Austurríski (varist að rugla saman við Heiðu hina svissnesku) að ljúka námi í stjórnmálafræði og hyggst kynna sér stjórnmál í Nottingham næsta vetur. Hefur hann fengið viðurnefnið Hötturinn ellegar Dýrið af augljósum ástæðum. Til hamingju með áfangann krakkar!!!

Halda skaltu hvíldardaginn heilagan
Það gerði ég á háa loftinu hjá settinu þar sem ég fór hamförum í að ryðja út rusli og drasli. Á endanum var farið með fullan sendibíl af drasli í gám. Nú sést í gólfið sumsstaðar á loftinu.

10. jún. 2003

Púff
Mikið rosalega voru strákarnir okkar í fótboltalandsliðinu heppnir á laugardaginn þegar þeir unnu Færeyjar. Þetta lið er náttúrlega algerlega hrunið og það þarf að fá einhvern karlmann til að reisa það úr öskustónni. Það þýðir ekkert að taka blíðu föðurlegu ímyndina á þessa gutta eins og Atli gerði. Það þarf svona "ég sef hjá konunni þinni - aftur" gæja eins og Gauja Þórðar eða Willum Þór til að bíta í nokkur eyru og sparka nokkrum takkaskóm. Annars held ég að þetta íslenska landslið geti orðið mjög gott. Við eigum rosalega efnilega einstaklinga og síðan fullt af ungum strákum sem eru að brillera með sínum liðum eins og t.d. Arnar Þór og Eiður Smári en menn gleyma því stundum að þessir menn eru bara 25 ára. Ég spái því að Ísland nái á HM innan 10 ára.

Liverpool
Nonni bróðir var eitthvað að barma sér yfir útreiðinni sem bítlínurnar frá Liverpool fá á þessari síðu. Ég hef bara eitt að segja um það: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

Helgin var rosaleg
Föstudagur
Hún hófst með erfiðum vinnudegi á föstudag en síðan var brunað í bæinn þar sem beið mín þetta líka svakalega re-union útskriftarárgangsins 1998 úr MR. Við byrjuðum hjá Einari og Jönu sem eru höfðingjar heim að sækja eins og áður. Við drukkum hressilega í Grænuhlíðinni áður en stefnan var sett á lögreglusalinn í Brautarholti þar sem við hittum fyrir gamla árgangsfélaga. Það er skemmst frá því að segja að úr varð hörkustuð og ég hef nú varla skemmt mér svona vel síðan ég var í MR. Við dröttuðumst svo heim eitthvað um kl. 3.
Laugardagur
Við vorum síðan vakin kl. 9 á laugardagsmorgunn til að fara austur í Grafning þar sem pabbi var í "sleppitúr". Við vorum komin að Villingavatni í Grafningi um kl. 12 og þá var riðið alla leið austur í Laugarás. Við Edda settumst í söðulinn skamma stund en sökum rassæris og "þreytu" frá kvöldinu áður, sátum við aðeins í tæpa tvo tíma á baki en sáum síðan um bílana það sem eftir var dags. Um kvöldið var síðan boðið til grillveislu þar sem grillað var svínakjöt og með því borið fram rauðvín, kartöflusalat og hrásalat. Á eftir fékk ég mér síðan Cohiba vindil frá Havana en varð eitthvað illt af honum (eins og reyndar alltaf þegar ég fæ mér vindil) og fór því snemma í háttinn eftir að hafa látið öskrin vaða yfir klósettið.
Sunnudagur
Sunnudagurinn byrjaði um hálftíu. Þá dreif ég mig í sturtu og í sparifötin og síðan rakleiðis í fermingu "fósturbróður" míns úr sveitinni. Gylfi var loksins fermdur en drengurinn sá hefur verið stærri en ég síðan hann var tólf ára. Hann er sem sé uppeldissonur Sigurðar bónda í Steinsholti sem fóstraði mig ein 10 sumur. Fermingin var snilld en þar var borið fram alls kyns brauð með pesto og ostum auk þess sem það var traditional kransakaka og nokkrar hnallþórur. Skemmtileg ferming hjá skemmtilegum strák. Eftir ferminguna var síðan farið á móts við hestafólkið og um kvöldið átum við ljúffengar lambalundir með bökuðum kartöflum og fersku salati. Ég er enn hálfsaddur því ég át á mig gat. Eftir mat var síðan brunað í bæinn því ég átti að vinna morguninn eftir í Kefló.
Mánudagur
Erfið vakt en skemmtileg. Er nú á leiðinni heim í háttinn.

31. maí 2003

Jæja!
Er ekki kominn tími á Gillann að blogga pínulítið. Það hefur mikið verið að gerast sl. daga. Byrjaði að vinna á fullu sl. mánudag á heilsgæslunni í Keflavík og tók mína fyrstu vakt hér á aðfaranótt miðvikudags. Nú er ég á annarri vaktinni og það lítur út fyrir að maður fái svolítinn frið í kvöld. Aðeins von á einum sjúklingi það ég veit. Ætli maður tjilli ekki bara og fari snemma að sofa. Ég verð að vera upplagður á morgunn þegar ég fer í Bláa lónið með Eddu og systur hennar Möggu ásamt frændsystkinum þeirra tveimur. Annars verð ég að segja að það kom mér á óvart hvað Grindavík er vinalegur bær, miklu stærri en ég átti von á og mikið af fallegum húsum. Svo er aksturinn hérna suður eftir miklu auðveldari en ég átti von á. Maður er innan við 40 mínútur að keyra þetta ef ekki er mikil umferð og löggan lætur mann í friði.

Boltinn
Íslenska landsliðið í handbolta stóð sig vel í gær þegar það valtaði yfir Dani í Austurbergi. Sá reyndar ekki nema síðasta korterið en þá voru strákarnir búnir að klára þetta. Síðan var mæting hér kl. 10 í morgunn og vaktin stendur til kl. 10 í fyrramálið. Ætli maður verði ekki að vona að það verði rólegt í kvöld.
Á miðvikudaginn töpuðum við síðan fyrir Ástinni og verður það að segjast að ég er orðinn leiður á því að keppa í fótbolta. Ég hef ekkert gaman að því að keppa lengur en þeim mun meira gaman af því að spila. Kannski er þetta til komið vegna þess að mér finnst leiðinlegt að tapa en skemmtilegt að vinna. Ég hef bara ekki skapgerðina í þetta. Ekki bætti úr skák að ég var búinn að vera allan daginn á slysadeildinni að láta athuga hvort það væri í lagi með hausinn á mér. Í ljós kom að ég er með eitthvað sem heitir occipital neuralgiu. Það er bólga í skyntaug aftan á hausnum á mér sem þýðir að ég er búinn að vera með hausverk í 3 mánuði og hann er ekkert á förum næstu vikurnar. Albert Páll taugalæknir sem skoðaði mig kippti í einhverja spotta og ég var kominn í deyfingu fyrir fjögur á föstudag þar sem sprautað var í kringum taugina á hnakkanum - djöfull var það sárt. Nú er ég ekki mikið skárri en þó þannig að ég finn ekkert fyrir þessu nema ég hnerri, hósti, rembist eða hlæi. Góðar stundir

23. maí 2003

Próflestur
Fer í heimilislæknisfræðipróf á morgunn. Er latur að lesa en er samt tæplega hálfnaður með efnið. Maður tekur á þessu í kvöld. Yfirleitt er þetta nú fremur auðvelt próf sem veltur á því að leysa vandamál sem lögð eru fyrir okkur. Síðan er það bara grill og gleði með Birgittu á morgun.

Viðar
Hefur heiðrað landið með nærveru sinni. Kom til landsins í gær og ætlar strax að taka á því í drykkjunni með því að kneyfa öl yfir Evrópusjóninni (Eurovision) annað kvöld. Inga Huld er lent temmilega snemma til að prenta sín alræmdu einkunnablöð og getur sleppt sér yfir búningunum og sviðsframkomunni hjá T.A.T.U. Velkomin heim skötuhjú.

22. maí 2003

Loksins kem ég aftur
Hef ekkert getað bloggað síðan fyrir síðustu helgi vegna anna. Er búinn að vinna þrjá eftirmiðdaga í Keflavík og líkar bara fínt. Maður er svolítið óöruggur til að byrja með en síðan kemur þetta þegar maður fer að sjá hlutina í þriðja og fjórða skipti. Ætli maður reyni ekki að miðla einhverjum fréttum hér í sumar, t.d. af gangi flutninga og gangi FC-Forseta í Utandeildinni.

Leikurinn
Fyrsti leikurinn okkar í Utandeildinni endaði ekki glæsilega því við gerðum okkur lítið fyrir og töpuðum 10-0. Ekki bætti úr skák að þjálfari okkar og máttarstólpinn í vörninni verður líklega frá út tímabilið þannig að ekki skánar vörnin til muna. Reyndar kom Ómar inn á fyrir hann og skilaði sínu hlutverki vel. Ívar stóð sig þrátt fyrir allt ágætlega í markinu og mörkin verða miklu frekar skrifuð á vörnina en hann. Auk þess megum við sem spilum framar á vellinum taka okkur saman í andlitinu og reyna að bæta okkar ráð fyrir næsta leik sem verður á móti góðvinum mínum í Ástinni. Það var gaman að sjá Ástina loksins spila eins og menn en það var reyndar ekki fyrr en þeir voru orðnir einum fleiri sem hlutirnir fóru að gerast hjá þeim á sunnudaginn. Þeir voru verulega óheppnir að tapa leiknum því þeir lágu hreinlega í færum eftir að leikmaður BR var rekinn út af. BR stal síðan sigrinum á síðustu sekúndunni þegar Ástin hafði sett allt kapp í sóknarleikinn. Slæmu fréttirnar fyrir Ástarmenn eru þær að tveir bestu menn þeirra í leiknum, þeir Jón Ingi og Mási, voru að spila sinn eina leik í sumar því báðir hafa þeir nú horfið til annarra verkefna. Hins vegar fá þeir Adda í staðinn en hann hefur verið einn besti leikmaður Ástarinnar frá því að Herði tókst að kenna honum að gefa boltann. Forsetinn mun hitta Ástina næstkomandi miðvikudag og þá verður sko tekið á því.

Ríkisstjórnin
Djöfull er ég ánægður með þess ríkisstjórn. Davíð verður áfram í ár og síðan tekur Dóri fúli við og það er bara fínt mál. Þorgerður Katrín kemur sterk inn og það er fínt að fá Sigríði Önnu Þórðardóttir líka til að sýna fólki að konur geta vel náð langt í Sjálfstæðisflokknum. Þetta eru tvær frambærilegar konur. Síðan var leiðindakerlingunni Sólveigu Pétursdóttur skipt út af og hún sett á bekkinn. Bjössi Bjarna er kominn aftur og það er ágætt að fá mann eins og hann í Dómsmálaráðuneytið og ég vona bara að hann leggi niður kirkjumálaráðuneytið og skilji að ríki og kirkju. Geir er traustur í ríkiskassann og Árni getur haldið áfram að skíta á sig í togararallinu. Ég er líka ánægður með að Árni Magnússon skuli fá ráðherrastól. Það er kominn tími á ungt fólk í ráðuneytin.

15. maí 2003

Fyndnar fréttir
Ég hélt ég mundi deyja úr hlátri yfir hádegisfréttunum í Ríkisútvarpinu í gær þegar sagðar voru fréttir af þeim flugfélögum sem væru hæfust í að koma farangri til skila. Eins og dyggir lesendur eflaust muna lenti ég í miklum hremmingum með farangurinn minn á leið til og frá Búdapest í haust og mér var því skemmt þegar flugfélögin tvö sem ég átti svo skemmtilegar minningar um voru bæði á topp tíu yfir skilvísustu flugfélögin. Ég get nú alveg sagt ykkur það að þau eru ekki á topp tíu listanum hjá mér. Því miður varð mér aldrei úr verki að skrifa harðorða grein í Moggann um þetta mál en það hefði sjálfsagt orðið til lítils annars en að ég hefði fengið viðurnefnið Gilli flugdólgur.

Geðlæknisfræði…
…hefur verið lögð að velli en mér gekk hreint ágætlega í prófinu í morgun þrátt fyrir að hafa næstum dáið úr leiðindum við að lesa fyrir þetta próf. Það eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að kalla þunglyndi mörgum nöfnum og hvað það eru til margar álíka gagnslausar aðferðir til að lækna það. Það merkilegasta við geðlæknisfræðina er þó það að þrátt fyrir 150 ára rannsóknir á lyfjum og sálfræðilegum meðferðum telur hinn almenni borgari sem hlotið hefur einhvers konar sálfræðiþjónustu í USA, AA-kerfið enn árangursríkustu leiðina til að ná sér út úr hversdagslegu þunglyndi skv. einhverri neytendakönnum fyrir nokkrum árum. Þetta er kannski ofureinföldun hjá mér en það er það verður mönnum ljósara með hverjum deginum hversu mikla möguleika tólf spora kerfi AA hefur og hefur það verið notað meðal annars af spilafíklum, aðstandendum alkóhólista, átfíklum, fólki með átraskanir, skapofsamönnum, kynlífsfíklum og fleirum. Þetta virðist alltaf skila árangri. Lyfin okkar eru seinvirk og yfirleitt með aukaverkanir sem trufla meðferðarheldni verulega. AA, OA, GA, Al-Anon og fleiri samtök eru því líklega framtíðin. Kannski fáum við Depressed Anonymous (DA), Anxios Anonynous (ANXAN), Schizophrenic Anonymous (SCAN) o.fl. samtök í framtíðinni – hver veit?

HAHAHAHA
Óli grís er búinn að kvænast Dorrit. Ætli hann hafi fengið demantshring á puttann sinn? Ætli þau hafi keypt hringana hjá Dorrit? Eru það ekki eins konar innherjaviðskipti?

14. maí 2003

Bara stutt í dag
Er að fara í geðlæknisfræði á morgunn og eftir því sem ég les meira þeim mun geðveikari verð ég. Ætli ég verði ekki kominn með schizotypal persónuleikaröskun á morgun eða eitthvað.

Prinsessa fædd
Gleymdi auðvitað að setja hér inn hamingjuóskir til Rögnu og Gumma með litlu prinsessuna sem fæddist að mig minnir sl. laugardag. Til hamingju með frumburðinn. Það er víst lítil hætta á öðru en að hún verði myndarlegur snillingur miðað við foreldrana.

12. maí 2003

Taugalæknisfræðin...
...var kláruð í morgun. Þetta gekk bærilega en ég held ég verði nú enginn taugabrilli í framtíðinni. Barnalæknisfræðin hefur enn forystu í baráttunni um hylli mína.
Vilji kjósenda
Það virðist vera að þegar fólk bíður sig fram fyrir Samfylkinguna fái það ókeypis námskeið í að túlka úrslit kosninga sér í hag. Þannig túlka þeir þá staðreynd að þingmönnum Samfylkingarinnar fjölgaði um 3 sé augljóst merki um vilja kjósenda að skipta um ríkisstjórn. Við hin sem kunnum stærðfræði vitum að u.þ.b. 5% fleiri kusu Samfylkinguna nú en síðast. Skv. vinstri mönnum eru það hins vegar þessi 5% sem túlka augljósan vilja kjósenda. Hmmm. Fólk sem veit raunverulega hvað lýðræði er skilur að sjálfsögðu að fylgi flokkanna gefur bestu vísbendinguna um vilja kjósenda og á laugardaginn var það augljóst að meirihluti kjósenda styður ríkisstjórnarflokkanna. (ef ég væri vinstrimaður hefði ég sagt ríkisstjórnina en ég veit auðvitað að margir kjósendur D og B vilja ekki áframhaldandi samstarf). Þessir vinstri menn geta talað svo fallega um margt og dregið svo skemmtilegar ályktanir að þeir eru stundum alveg stórskemmtilegir og stundum jafnvel hlægilegir.

Ég ætla að sjálfsögðu ekki að neita því að ég er verulega svekktur yfir gengi Sjálfstæðisflokksins því þótt ég sé nú ekki alfarið sammála stefnu hans í mörgum málum er hann raunverulega eini valkosturinn fyrir hægri búra eins og mig. Lokaniðurstaðan er hins vegar sú að Samfylkingunni mistókst í tveimur af þremur áætlunarverkum sínum. Í fyrsta lagi tókst þeim ekki að fella ríkisstjórnina og í öðru lagi tókst þeim ekki að koma gullkálfinum sínum frá Ráðhúsinu á Austurvöll þrátt fyrir að þetta séu nú ekki nema örfáir metrar. Þeim tókst hins vegar að gera Samfylkinguna að því afli í íslensku stjórnmálum sem þá dreymdi um og fyrir það ber að óska þeim til hamingju. Það kostaði hins vegar það að gullkálfurinn þeirra heltist úr lestinni á miðri leið og verður einhvers staðar út á túni að jafna sig næstu þrjú árin. Kannski hún geti nýtt tækifærið, farið í Háskóla Íslands og hjálpað Röskvu að vinna aftur meirihluta sinn í Stúdentaráði.

Það sem mér fannst ánægjulegast er að sjá allt þetta unga fólk sem nær inn á þing. Þrír fyrir Frjálslynda, Ágúst, Katrín, Bryndís Hlö og fleiri fyrir Samfylkinguna, Siggi Kári, Biggi Ármanns, Bjarni Ben og Guðlaugur Þór fyrir Sjálfstæðismenn og Dagný, Árni og þessi pjakkur þarna fyrir austan fyrir Framsókn. Það er hins vegar skemmtileg pæling sem Spurningasveppurinn kom með varðandi frétt Moggans um lækkandi meðalaldur þingmanna. Þrátt fyrir að meðalaldurinn á Alþingi hafi nú lækkað um fimm ár þá hafa auðvitað liðið fjögur ár síðan gömlu þingmennirnir voru kosnir og því hefur meðalaldur kosinna manna ekki lækkað nema um eitt ár. Það er þó vissulega þróun í rétt átt.

Boltinn
Mínir menn krýndir á sunnudag og ég var glaður. Það var líka vegna þess að kettlingarnir frá Bítlaborginni komust ekki í Meistaradeildina enda á svona skítalið ekki heima þar. Sorry, Golli, Kobbi, Þór, Eiki, Óttar og Nonni en það er bara staðreynd. Þeir eru ekki nógu góðir til að spila í Evrópu. Rúðan tók svo að sjálfsögðu markakóngstitilinn eftir að Henry skoraði bara eitt af tíu mörkum Arsenal í síðustu 2 leikjum. Hey, hann er alla vega góður í að leggja upp. Annars verð ég nú að viðurkenna að mér líður eins og þjófi yfir þessu því Henry er búinn að vera svo miklu betri en Nistelrooy í vetur enda sést það á því að hann er næstmarkahæstur og með langflestar stoðsendingar í deildinni. Maðurinn er snillingur og það verður gaman að sjá hann við hliðina á Ruud hjá United næsta vetur.

11. maí 2003

Dapurlegur dagur
Dagsins í gær verður minnst í mínum huga sem dagsins sem Íslendingar kusu næstum yfir sig skattpíningardrottninguna Skalla-Sollu. Sem betur fer sáu Sunnlendingar að þetta gengi ekki og felldu Ingibjörgu á síðustu utankjörfundaratkvæðunum. Þetta þýðir að Framsóknarmenn halda sínum 12 þingmönnum, Sjálfstæðisflokkurinn fær 22 og er í sögulegu lágmarki, Samfylking fær 20 þingmenn og sannar að enn eru 30% þjóðarinnar með greindarvísitölu á við ísskáp, Frjálslyndir fá 4 sem er fínt en Vinstri grænir (a.k.a. gamlir kommar) fá 5 þingmenn. Þrátt fyrir gífurlegan meðbyr og frábærar viðtökur fengu nýtt afl og T-listi Kristjáns Pálssonar enga þingmenn. Það var nú eiginlega bara tvennt sem gladdi mitt auma hjarta í nótt og morgun en það var að Ingibjörg skyldi ekki ná kjöri en það þýðir að pólítískur ferill hennar er í 3 ára biðstöðu. Hitt er það að svo margt ungt fólk náði kjöri fyrir Framsókn, Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk. Í þeim hópi er ég að sjálfsögðu ánægðastur með fjölskylduvininn Birgi Ármannsson í syðra Reykjavíkurkjördæminu. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að Birgir á eftir að ná langt í pólítík. En það er ljóst að allir geta vel við sína niðurstöðu unað nema Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir. Til hamingju skattgreiðendur - ykkur mistókst að hækka skattana undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.