16. jan. 2009

Boltinn

Bara svona fyrir þá sem elska fótbolta þá er ég gríðarlega sáttur við að mínir menn skuli hafa lagt Wigan að velli í vikunni. Gríðarlega mikilvægt skref í átt að Liverpool á toppnum og nú er ekki langt að bíða þar til við stingum þessa aumingja af í titilbaráttunni. Það eru svona tiltölulega auðveldir leikir framundan í deild og bikar - Bolton í deildinni á laugardaginn, svo Derby í deildarbikarnum, þá Tottenham í bikarnum, síðan heimsækjum við West Brom í deildinni og fáum svo Everton í heimsókn í deildinni. Eftir þessa leiki held ég að United verði komið á toppinn því Liverpool á þrjá Everton, Wigan og Chelsea í næstu þremur leikjum í deild, og reyndar Everton í bikarnum líka inn á milli. Þetta verður létt það sem eftir er tímabils og ég held að við tökum þrjár dollur í ár.

Vakt og vinna

Ég tók svona fylgdarvakt á miðvikudag og var í húsinu til miðnættis. Þegar ég ætlaði síðan að hjóla heim var orðið afturdekkið loftlaust. Einhverra hluta vegna hafði mér dottið í hug um morguninn að það gæti verið gott að hafa tösku með viðhaldsgræjum fyrir hjólið í bakpokanum og hún kom sér því vel strax fyrsta daginn sem ég bar hana með mér í vinnuna. Gat pumpað í dekkið og komið svo við á einni bensínstöð á leiðinni til að pumpa aftur og komst þannig heim. Ég var því ekki kominn heim í rúm fyrr en kl. 1 og þurfti síðan að vakna kl. 5:45 til að ganga í vinnuna. Ég hefði svo sem getað tekið lestina en ákvað að ég hefði gott af því að vakna aðeins eftir lítinn nætursvefn og það virkaði. Var lítið sem ekkert þreyttur í vinnunni í gær þrátt fyrir að ég vekti bara yfir einni aðgerð sem tók allan daginn.

Vaktin var annars skemmtileg og vaktavinnan snýst greinilega að mestu um það sama og heima nema það er annar reyndari deildarlæknir sem sinnir gjörgæslunni að mestu. Hér skiptist hún í nokkra hluta þ.e. intensiv avdeling og post operativ enhet. Hvort tveggja er sambærilegt við gjörgæsluna heima. IA tekur veika medicinska sjúklinga og fleira á meðan p.o. tekur þá sem koma úr aðgerðum með barkarennu (í öndunarvél) en gert er ráð fyrir að geti komist á deild daginn eftir. Almennt stoppa sjúklingarnir skemur hér á gjörgæslunni því flestar deildir eru með sína eigin hágæslu en þar fylgja svæfingalæknarnir þeim eftir með innlitum og aðstoða við hluti sem okkur eru tamir.

Vaktin sem ég geng til að byrja með er sem sagt mest skurðstofuvinna og hjálp með vandamál úti á deildum s.s. fæðingardeyfingar o.fl. En ég byrja svo sem ekki á þeim vöktum fyrr en í maí því í febrúar, mars og apríl verð ég á Radiumhospitalet sem er sérstakur hluti spítalans þar sem flestar krabbameinsaðgerðir eru gerðar og krabbameinslyfjadeildin er þar líka. Það er víst mjög gott að byrja þar því tempóið er aðeins hægara og vaktirnar rólegri þannig að maður getur lært norsku í rólegheitum og er ekki algerlega á haus á vöktunum eins og virðist vera hér á Rikshospitalet.

Eftir vinnu fórum við Nonni bróðir og fengum okkur að borða og nokkra bjóra og fórum svo til Håkons vinar hans Jóns Braga og fengum okkur nokkra bjóra með honum og Kristinu konu hans. Svo gisti ég þar því það hefði tekið óratíma að komast heim í gærkvöldi og ég var gjörsamlega aðframkominn af þreytu. Svaf eins og ungabarn í gestaherbergi hjá þeim og vaknaði svo kl. hálfníu og fékk far með Kristinu í vinnuna (hún er líka læknir á Rikshospitalet). Ákvað svo að setjast aðeins við tölvuna og vinna og blogga áður en ég fer heim að gera við hjólið.

Lítill frændi

Ég varð föðurbróðir í sjöunda skipti í á þriðjudaginn þegar Óttar bróðir eignaðist sitt fjórða barn og þriðja drenginn. Glæsilegur piltur eins og allir aðrir í minni fjölskyldu ;)

13. jan. 2009

Nýtt heimilisfang og sími

Set nýjan síma og heimilisfang hér til hliðar. Síminn er svona frelsissími þannig að ég svara örugglega ekki mikið af sms-um nema ég sé við tölvu. Hins vegar getið þið prófað að hringja á skrifstofuna mína milli kl. 1530 og 1800 á norskum tíma (14:30 og 17:00 á Íslandi núna en 13:30 og 16:00 þegar sumartíminn kemur) því þá er planið að vera að lesa. Svo er læst á Facebook á sjúkrahúsinu þannig að ég læt ekki sjá mig þar fyrr en eftir hálfan mánuð til þrjár vikur nema ég komist einhvers staðar á netið annars staðar en í vinnunni.

MBK
GBB

Gaman í vinnunni en erfitt á kvöldin

Ég nýt mín sífellt meira í vinnunni. Norskan kemur mjög fljótt og faglega er ég að sjá nýja hluti á hverjum degi. Líffæraflutningar 2-3 á dag síðustu dagana. Sjúkdómar sem ég hef annað hvort bara lesið um í bókum eða aldrei heyrt um. Ótrúlega spennandi tilfelli og maður endurnýjar áhugann alveg upp á nýtt sem þó var ekki lítill fyrir. Ég reyni að hafa nóg fyrir stafni á daginn og fram undir kvöldmat með því að lesa og undirbúa mig fyrir aðgerðir morgundagsins. Planið þar til mæðgurnar koma út er að lesa fram undir kvöldmat, hjóla þá heim og slaka á eftir kvöldmat, fara kannski út að hlaupa 3-4 x í viku og fara svo snemma í háttinn. Kvöldin eru erfið en það hjálpar að ég hef verið eitthvað að gera flest kvöld. Nú ætla ég að einbeita mér að því að hrekkja nágranna mína með því að æfa mig á gítarinn á kvöldin. Á morgun tek ég svokallaða "følgevakt" sem þýðir að ég ætla að elta forvaktina og sjá hvernig vaktavinnan gengur fyrir sig. Fyrir það fæ ég síðan frí á föstudaginn, þ.e. ég verð á launum á vaktinni sem er ekki eitthvað sem ég vandist á svona vöktum á Íslandi. Ég á því langa helgi um helgina.

12. jan. 2009

Íbúðin

Ég svaf fyrstu nóttina í herberginu síðastliðna nótt. Fínt herbergi sem er rúmgott og ekki svo kuldalegt þegar maður er búinn að koma sér fyrir. Set myndir sem ég tók á símann minn hér fyrir neðan. Ég hjólaði líka í vinnuna í fyrsta skipti í morgunn. Það tók u.þ.b. 25 mínútur en ég hafði ekki farið þetta fyrr og fór því rólega og reyndar aðeins vitlaust líka. Þetta er líka allt upp í móti þannig að ég verð örugglega miklu fljótari heim á eftir. Svo er bara að fara út í búð að versla í matinn svo maður geti byrjað að smyrja sér nesti eins og Norðmenn virðast flestir gera. Þeir fara kannski í matsalinn einu sinni í viku í mesta lagi enda er það mjög dýrt.





Burst

Ég sá mína menn taka Chel$ky í bakaríið í gær. Giggs var góður á miðjunni en ég var sérstaklega hrifinn af Jonny Evans í miðri vörninni með Vidic. Það er greinilegt að framtíðin er björt þarna í vörninni því Vidic er enn tiltölulega ungur og Ferdinand líka og svo er þessi gutti bara nýorðinn 21 árs. En þetta var alla vega mjög notalegt að horfa á og ekki skemmdi fyrir frábær matur hjá Bigga, Ásu og þríburunum spræku. Tók lestina í fyrsta (og annað) skipti frá miðbænum í Osló þar sem ég bý og út í Sandvika-stöðina í Bærum. Mjög þægilegt.

9. jan. 2009

Nýtt símanúmer

Ég er kominn með norskt símanúmer og legg því hið íslenska á hilluna í bili. Nýja númerið er 0047-9426-8750 og er svona frelsiskort á norska vísu. Geri síðan ráð fyrir að fá nýtt númer um leið og ég hef fengið norska kennitölu. Er reyndar kominn með norska lækningaleyfið - fékk fréttir af því í dag að það er á leiðinni í póstinum heim. Það breytir svo sem ekki miklu í bili en gerir það að verkum að ég er löglegur í vinnunni.

Megrun

Ég er svo sem ekki í neinni megrun en ég er aðeins að reyna að breyta um lífsstíl og borða hollari mat. Það hjálpar hvað ég fæ góðan og hollan mat hjá Hildi og Viðari en eins og ég hef sagt verð ég ekki nema eitt kvöld í viðbót hér og svo ætla ég að flytja niður í bæ á sunnudag. Þá á ég auðvitað eftir að hjóla meira svo hreyfingin kemur en það hefur hjálpað þessa vikuna að frá bílastæðunum geng ég upp þrjár hæðir þar til ég er kominn út og svo geng ég 500 m að álmunni þar sem skrifstofan mín er og svo upp 4 hæðir til viðbótar þannig að ég er að labba amk 1 km bara til og frá bílastæðinu. Svo er heilmikið labb að ganga um þennan stóra spítala. Ég finn það á fötunum að ég er að grennast töluvert og það er bara fínt. Stefnan var sett niður fyrir 70 kg og nú er bara að standa sig í hjólreiðum og hlaupum og þá kemur það fljótt.

Það var svolítið mikið að gera í vinnunni í dag og ég er auðvitað svolítið lengur að öllu vegna þess að ég er ekki alveg farinn að rata um spítalann og svo tefja tungumálaörðugleikar aðeins fyrir mér. Var aftur á kvennadeildinni í dag og það er fínt því ég er vanur því að heiman. Þetta eru hins vegar oft flóknari svæfingar því oft eru sjúklingarnir hér með alls kyns undirliggjandi vandamál sem maður er ekki vanur að heiman og því þarf alls kyns meðferðir til að takast á við það. Mjög skemmtilegt og lærdómsríkt.

Bið að heilsa öllum heima og það væri gaman ef fleiri létu heyra í sér í commentakerfinu. Það hjálpar með einmanaleikann sem sækir að manni án fjölskyldunnar á nýjum stað.

7. jan. 2009

Brúðkaups- og bróðurafmæli

Við Edda eigum leðurbrúðkaup (3 ár) í dag 7. janúar og Óttar bróðir er 39 ára í dag. Hamingjuóskir til allra.

Ferð í IKEA og fleira

Góður dagur í vinnunni í dag. Aftur á kvennadeild. Vorum reyndar fjórir (Sérfræðingur, sérfræðinemi sem kom í heimsókn frá öðru sjúkrahúsi þar sem ekki er kvennadeild, læknanemi og ég) um eina stofu því það var lítið prógram. Ég er strax farinn að taka stórstígum framförum í norskunni (að eigin mati) og Norðmennirnir virðast oftast skilja það sem ég segi. Hér er mikil hefð fyrir erlendum svæfingalæknum og mér reiknast til að næstum þriðjungur sérfræðinemanna sé útlendingar og töluvert af sérfræðingunum. Var til dæmis bæði í gær og í dag með þýska sérfræðinga á bakvið mig.
Eftir vinnu fór ég aftur að kíkja á herbergið til að athuga hvað ég þyrfti að útvega mér áður en ég flyt inn og fór síðan í IKEA og keypti það sem upp á vantaði. IKEA verslunin hérna úti í Bærum er mjög stór og flott og verðið töluvert betra en heima. Ég keypti til að mynda næstum fullan bláan IKEA-poka af alls kyns dóti og borgaði eitthvað um 500 norskar fyrir. Mjög gott mál. Fór síðan í bílskúrinn til Geirs til að koma hjólinu í stand fyrir hjólreiðarnar næstu vikurnar.

6. jan. 2009

Vinnan

Var á skurðstofunni og kom nálægt sjúklingum í dag. Var á kvennaklíníkinni og það gekk vel. Strax búinn að sjá tvær aðferðir sem ég hef ekki séð heima þannig að þetta lofar góðu. Eftir vinnu fór ég og reddaði mér norsku símanúmeri en það er ekki komið í gagnið. Set það inn þegar síminn er farinn að virka. Fékk svo frábæra grænmetissúpu hjá Hildi í kvöldmat og fór svo út að hlaupa og tók 13,4 km hring um Bærum. Þreyttur núna og ætla að fara að sofa.

5. jan. 2009

Fyrsti dagurinn

Þá er fyrsti vinnudagurinn að baki. Ég svaf eins og engill í nótt en það er í fyrsta skipti sem ég geri það nóttina áður en ég byrja í nýrri vinnu. Var síðan mættur snemma eða upp úr sjö. Fékk lánaðan bílinn hans Nonna bróður en hann hefur ekki selst síðan þau fóru heim. Það léttir mér óneitanlega lífið fyrstu vikuna enda heilmikill þeytingur á manni. En ég sumsé mætti og allt gekk vel. Mesti parturinn af morgninum fór í skoðunarferð um spítalann og á meðan á henni stóð var komið við til að fá föt, auðkenniskort og fleira slíkt. Ég er meira að segja kominn með skrifstofu sem ég deili með einum öðrum sem er náttúrlega snilld. Ég hef mína eigin tölvu og mikið hillupláss og mér sýnist því að Norðmenn ætlist til að maður vinni í vinnunni en slappi af heima. Ég ætla að taka hintinu. Ég fékk síðan að fara um hádegið til að redda ýmislegu hjá skattinum hér úti en ég þurfti bæði að tilkynna flutning og sækja um norska kennitölu. Það kom upp úr dúrnum að gamla kennitalan mín síðan 1998 er enn á skrá hér en dottin úr gildi þannig að ég þarf nýja. Það tók rúman klukkutíma að komast að á skattstofunni en þegar það loksins gekk var afgreiðsludaman hin almennilegasta og sérlega hjálpsöm - það er eitthvað að ganga þessa dagana. Í það minnsta er þetta frágengið en afgreiðslan tekur u.þ.b. 3 vikur. Fór svo að athuga með leikskólamálin fyrir Hildi Vöku hér á bæjarskrifstofunum í Bærum og spurðist fyrir um atvinnu fyrir Eddu líka. Síðan kíkti ég í Sandvika Storsenter en var tæpur á tíma og gat ekki verslað neitt af því sem mig vantaði. Geri það á morgun eða hinn. En alla vega þá var fyrsti dagurinn bara mjög lofandi og ég hlakka til að mæta aftur á morgun.

4. jan. 2009

Ferðasaga

Við komuna í Leifsstöð leið mér eins og hálfvita með hjól í heimatilbúnum kassa og tvo bakpoka – hvernig dettur einhverjum að ferðast einn með tvo bakpoka. Röðin var stutt en samt nógu löng til að nokkrir veltu fyrir sér hver furðufuglinn með kassann væri. Svo kom að mér og ég rétti miðann. Það næsta sem ég heyrði var: “Þú áttir flug í gær”. Ég hafði á einhvern undarlegan hátt náð að breyta dagsetningunni á bókuninni án þess að taka eftir því og pantaði óvart 2. janúar í stað 3. Ég fékk nett panic-kast en Ingi og konan náðu að róa mig og koma mér í söluskrifstofu Icelandair og þar var einstaklega vingjarnleg og elskuleg kona sem bjargaði mér fyrir horn og gat breytt miðanum gegn mjög skaplegu gjaldi. Eftir þessa reynslu mun þurfa mikið til að ég segi styggðaryrði um Icelandair. Hjálpsemin og hugulsemin einstök. Allur farangurinn komst svo á leiðarenda og ég komst í flugvélina án þess að drepast úr hjartaáfalli og er kominn til Viðars og Hildar og allra hinna hér í Íslendinganýlendunni á Borkenholmsveien í Bærum. Ég geri ráð fyrir að vera hér eitthvað fram í vikuna og færa mig svo þegar ég veit hvernig aðstaðan er og hef gert ráðstafanir varðandi nauðsynjavörur. Svo er það bara djúpa laugin á mánudag sem er einhvers konar kynnisdagur og seinni partinn þá verð ég líklega að drífa mig í alls kyns útréttingar – flytja lögheimilið, fá kennitölu o.s.frv. Læt vita af mér fljótlega aftur.

Kveðjustund

Við hjónin héldum gott kveðjupartý á föstudaginn. Það var opið hús og margir létu sjá sig til að kveðja Dvergmennið. Það var mjög gaman að sjá svo marga og ég er þakklátur fyrir allar góðu kveðjurnar. Ég gat síðan lítið sofið um nóttina og það endaði með því að við hjónakornin sofnuðum ekki fyrr en á milli tvö og þrjú um nóttina en síðan þurfti ég að vakna rétt fyrir fimm til að drífa mig út á flugvöll. Ingólfur skutlaði mér og það var kannski eins gott því hann fór hamförum í að redda mér þegar á reyndi í Leifsstöð.

27. des. 2008

Ofsi

Ég hef nú aldrei verið sérstakur aðdáandi Einars Kárasonar þó ég hafi reyndar haft gaman af Djöflaeyjunni á sínum tíma. En mamma og pabbi gáfu mér nýja bók með þessu nafni í jólagjöf og ég byrjaði að glugga aðeins í hana á aðfangadagskvöld, las svo stærstan hluta af henni á jóladag og kláraði hana fljótlega eftir hádegið í dag. Það er langt síðan ég hef orðið svo gjörsamlega heltekin af bók. Þarna endursegir Einar aðdraganda og atburði í kringum Flugumýrarbrennu með því að leggja ýmsum sögupersónum orð í munn eða öllu heldur þanka í hug. Mjög skemmtileg nálgun og skilar sér í því að maður drekkur í sig síðurnar. Mér finnst reyndar orðalagið ekki mjög þesslegt að þannig hafi Gissur Þorvaldsson jarl og Sturla Þórðarson skáld hugsað en það er smáatriði. Grípandi saga sögð í fáum orðum og útkoman frábær afþreying. Ég var næstum búinn að gleyma hvað það er gaman að lesa. Ég er þegar tekin til við aðra bók sem ég fékk en það er Úngur ég var eftir Halldór Laxness. Edda hefur haft það fyrir sið að gefa mér nokkrar bækur í Laxness-safnið mitt en ég hef því miður ekki verið jafnduglegur að lesa þær. Næsta árið ætla ég að gera bragarbót á því.

Noregsför og barnalán

Fyrir þá sem ekki hafa frétt hef ég fengið afleysingastöðu á Ríkisspítalanum í Osló frá áramótum. Ég flýg út laugardaginn 3. janúar og hef störf að morgni mánudagsins 5. janúar. Ég fer einn til að byrja með en við vonumst til að Edda og Hildur Vaka geti flutt út með vorinu en það veltur á nokkrum þáttum og þá aðallega hvernig þróast með vinnumál Eddu Guðrúnar. Við eigum von á barni númer tvö í sumar og það er margslags vesen með fæðingarorlofsmál sem við verðum að greiða úr áður en Edda getur flutt. Ég ætla því að byrja á því að búa í einhverjum húsakynnum sem sjúkrahúsið hefur yfir að ráða en flyt mig vonandi um set þegar nær dregur páskum.

Jólablogg

Við erum búin að hafa það rólegt og gott um jólin. Ég vann fram að hádegi á aðfangadag og fór þá minn venjulega rúnt með kort og pakka. Kom við í kirkjugarðinum hjá ömmu og afa og svo út á Álftanes í kaffi til Siggu og Sigga. Síðan var jólamáltíðin hjá tengdó en við entumst fremur stutt og vorum komin heim í rúmið fyrir miðnætti. Síðan var súkkulaði hjá tengdó aftur á jóladag og síðan fórum við beint í jólaboð Bergmann-fjölskyldunnar hjá Guðrúnu föðursystur minni. Í dag annan í jólum var síðan rólegt fram eftir degi. Eftir hádegið fórum við í prufukeyrslu á nýju snjóþotunni hennar Hildar Vöku sem hún fékk frá ömmu og afa í Eskihlíð. Að sjálfsögðu í nýja flísgallanum frá ömmu og afa í Lerkihlíð. Fengum okkur svo kaffi hjá Óttari bróður á heimleiðinni. Síðan var súkkulaði hjá mömmu og pabba áður en við fórum í fjölskyldujólaboð hjá tengdó. Svo þurfti ég að drífa mig í vinnuna en skyldi liðið eftir í góðum fílíng sem mér skilst að hafi varað langt fram yfir miðnættið.

22. des. 2008

Heimsmeistarar félagsliða

Þó árið hafi verið fremur rýrt á skerinu hafa mínir menn í Manchester aldeilis átt gott ár. Góðir endir á árinu að taka þessa pappírsdollu þarna austur frá. Englandsmeistarar, Evrópumeistarar og Heimsmeistarar - geri aðrir betur. Síðan sýnist manni þetta verði fastir liðir eins og venjulega. Liverpool og Arsenal springa á limminu og keppnin verður milli Chelsky og Manchester United. Ég vona bara að þessi hópur haldi út árið og það verði ekki seldir mikilvægir menn í janúar. Til hamingju allir rauðir djöflar.

20. des. 2008

Noregur

Þá brestur það á. Ég er búinn að panta mér flug út þann 3. janúar og hef störf á Ríkisspítalanum í Osló mánudaginn 5. Edda og Hildur Vaka ætla að vera aðeins lengur heima og koma út einhvern tíma með hækkandi sól. Ég mun búa í íbúð á vegum spítalans þar til þær mæðgur koma út og ætli maður verði ekki mest í að lesa svæfingafræðin og læra norsku fyrstu mánuðina.