Vaktin
Vakt númer tvö sl. nótt. Það var dálítið að gera fram eftir kvöldi en svo róaðist það og ég náði að sofa svolítið í nótt. Nú þarf ég að hjóla heim í gríðarmiklum snjó því nú hefur snjóað næstum sleitulaust í sólarhring hér. Gröfukarlarnir hérna eru reyndar mun duglegri að moka en heima svo göturnar eru auðar mestan partinn af deginum en það verður gaman að sjá hversu oft ég dett á leiðinni heim.
Tölvan
Ég endaði með því að gefast upp fyrir Trójuvírusnum sem hefur heltekið tölvuna mína. Náði að bjarga því út úr tölvunni sem er ekki auðvelt að bæta og setja það á harða diskinn og ætla svo að fá vana menn í að strauja tölvuna þegar ég kem heim í næstu viku. Nú eru bara sex dagar þar til ég kem heim og fæ að sjá stelpurnar mínar aftur. Svo er bara að setja í gáminn og flytja út. Ekki eftir neinu að bíða held ég enda ætlar Edda að reyna að vinna eitthvað með vorinu. Planið er að hún komi til Noregs í byrjun mars en við fáum húsið afhent um mánaðarmótin febrúar/mars. Þá flyt ég sennilega út eftir með það litla sem ég á hér og reyni að fá lánaða dýnu hjá bóngóðum nágrönnum.
Boltinn
Mikilvæg þessi helgi í boltanum. Liverpool og Chelsea spila í dag og svo United og Arsenal á morgun. Mínir menn hafa oft lent í vandræðum með West Ham en oftast hefur það sloppið fyrir horn. Vonum að það verði svoleiðis á morgun. Ég held að bæði Liverpool og Chelsea tapi stigum í dag en það er kannski mest óskhyggja.
6 ummæli:
Hvaðan koma þessir hestar? Á ekki allt að vera uppi á borðinu í þessu sem öðru?
-Viðar
Hvaða hesta ertu að tala um kallinn minn?
Láttu ekki eins og þú sért ekki þarna, ég sé þig vel! (Við erum auðvitað að tala um Trójuhesta, sem virðast einkum koma úr einni átt.)
-Viðar
Láttu ekki eins og þú sért ekki þarna, ég sé þig vel! (Við erum auðvitað að tala um Trójuhesta, sem virðast einkum koma úr einni átt.)
-Viðar
Thetta er ferlegt fyrirbæri. Tølvan min er onothæf en eg fæ vonandi urbætur um helgina thegar eg kem heim. Ingvar ætlar ad hjalpa mer ad lækna hana.
Hmmm...málinu drepið á dreif...
-vp
Skrifa ummæli