15. feb. 2009
Eurovision
Ég verð að segja að það kom mér verulega á óvart að sjá Jóhönnu Guðrúnu í Eurovision-forkeppninni í kvöld. Allt í einu getur bara litla óþolandi barnastjarnan sungið eins og engill þetta frábæra lag. Við Edda sátum bæði hérna heima í stofu og misstum andlitið. Það verður ekki amalegt að senda eina ljóshærða og huggulega í Eurovision. Það verður kannski smásjokk fyrir Evrópubúa að bomban geti sungið líka en það hlýtur að venjast. Mér fannst líka flott lögin hjá Ingó og Edgari Smára en restin var frekar slöpp að mínu mati.
2 ummæli:
Velkomin heim :)
...já hún, ólíkt flestum öðrum í keppninni, hélt lagi, sem verður að teljast plús...en mér finnst eitthvað sad við þetta - en við höfum prófað að senda flest annað og það hefur ekki gengið hingað til, svo að kannski er bara komið að ballöðunni??
Bara taka þetta þá alla leið - slöngulokkar, fleginn kjóll og wonder-bra...tékk;)
-íris
Skrifa ummæli