Átti einn versta d sem ég man eftir í gær. Þannig er að ég ætlaði að fá lánaðan bílinn hjá Nonna bróður og hugðist sækja hann fyrir vinnu í gærmorgunn. Þegar ég ætlaði að starta bílnum var hann rafmagnslaus og ég hef líklega gleymt að slökkva ljós í honum tveimur dögum áður. Við því var lítið að gera því ég átti að mæta í vinnuna eftir 25 mínútur í 5 km fjarlægð. Komst á réttum tíma í vinnuna en þetta var fyrsti dagurinn í vinnunni sem ekki var skemmtilegur af ýmsum orsökum. Ég fór svo strax eftir vinnu með Geir að reyna að starta bílnum með köplum en geymirinn var svo dauður að hann fékk ekki nógan straum úr Geir. Ég fékk því far með honum út til Bærum til að sækja nokkra pakka á pósthúsið. Var síðan boðinn í mat hjá þeim hjónum en Inga hafði gert frábæran pastarétt úr Silfurskeiðinni. Þetta var það eina sem var gott við gærdaginn, þ.e. að njóta matarins með góðum vinum. Hvað um það. Geir skutlaði mér síðan á lestarstöðina í Sandvika og ég tók lestina niður til Osló og ætlaði síðan að taka neðanjarðarlestina upp á Ríkisspítala þar sem ég hafði mælt mér mót við Håkon vin hans Jóns Braga til að gera aðra tilraun með kapla. Það gekk ekki heldur. Ég hafði hins vegar að ráði JB gengið í NAF (FÍB þeirra Norðmanna) í gærkvöldi og í morgunn þegar ég vaknaði mælti ég mér mót við bílakall frá þeim til að athuga með bílinn og draga hann á verkstæði ef við fengjum hann ekki í gang. Sá fyrsti kom kl. 11:30 en startbatteríið hans var ekki nógu hlaðið svo það dugði aðeins til að bíllinn startaði aðeins en fór ekki í gang. Ég þurfti því að bíða í aðra 2 tíma eftir einhverjum vanari gaur sem kom svo kl. tvö og reddaði málunum á 5 mínútum. Ég keyrði síðan bílinn í hálfan annan klukkutíma til að hlaða geyminn og vona að það hafi verið nóg til að bíllinn fari í gang í fyrramálið.
Heimferð
Ég fer síðan beint af vaktinni í fyrramálið að láta athuga með geyminn fyrir gamla og svo er það bara að sækja farangurinn og brenna á flugvöllinn. Verð með íslenska símann minn heima ef einhver þarf að ná í mig.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli