9. feb. 2009

Kuldi og snjór

Þetta er búin að vera fín helgi. Hún byrjaði eiginlega á fimmtudaginn með árlegri kampavínsgleði á Ríkisspítalanum. Ég átti vaktina nóttina áður en það var mín fyrsta vakt hér í Noregi. Svolítið að gera en ekkert í líkingu hvernig það var stundum á Landspítalanum. Það er víst meira svoleiðis þegar ég kem inn á Ríkisspítala. Það var þrusustuð og mikið kampavín í boði. Eftir veisluna var stefnan sett á bar sem heitir Lorry sem er einskonar vinnubar svæfingardeildarinnar hér. Þar var drukkið aðeins meira en ég dreif mig heim um tíuleytið vegna þreytu eftir vaktina.

Svaf síðan vel um nóttina og mætti til vinnu á föstudagsmorgunn. Þá bauðst mér að taka vaktina aðfaranótt laugardagsins sem ég og þáði. Ég vann þannig frá hálfátta á föstudagsmorgunn (vaknaði kl. 6) til kl. 10 á laugardagsmorgunn en það var rólegt og ég gat sofið heilmikið um nóttina.

Á laugardaginn var ég svo boðinn í mat til vinar hans Nonna bróður. Ég lenti í rosalegum vandræðum á leiðinni því lestinni minni seinkaði um klukkutíma vegna snjóa og ég var því næstum 45 mínútum of seinn í boðið. Á boðstólnum var þýskur matur með snaffs og bjór og þar var setið við drykkju til að verða 3 um nóttina. Ég var reyndar ekki mjög liðtækur í drykkjunni en sat með fólkinu fram á nótt. Ég fékk síðan að gista hjá þeim og tók lestina heim á sunnudagsmorgunn. Þá var loksins hætt að snjóa eftir næstum tveggja sólarhringa snjókomu. Um nóttina hafði fallið næstum 30 cm jafnfallinn snjór. Ótrúlegt að upplifa svona snjókomu í logni því heima er alltaf kolvitlaust veður þegar snjóar svona mikið.

Í gær tók ég það svo rólega. Horfði á leikinn og las svolítið og fór svo snemma í háttinn til að verða upplagður í dag. Nú eru bara 4 daga þar til ég kem heim og ég get varla beðið. Edda er byrjuð að setja ofan í kassa og við ætlum að nota þessa viku sem ég er heima til að klára það og setja í gáminn. Það verður stuð. Svo er það bara Heija Norge!

Engin ummæli: