10. feb. 2009

Ótrúlegir fábjánar

Það er ótrúlegt að lesa skrif bankamanna um þessar mundir. Hver af öðrum skrifa þeir greinar í blöðin til höfuðs Seðlabankanum og bankastjórunum þar. Nú í dag má lesa grein eftir Sigurð Einarsson fyrrum stjórnarformann Kaupþings sem verður að teljast einn af aðalskúrkunum í aðdraganda efnahagshrunsins á Íslandi. Sigurður tekur fram mörg afglöp sem hann telur gagnrýniverð í starfi Davíðs sem formanns bankastjórnar Seðlabankans.
Gagnrýnin á að miklu leyti rétt á sér en Sigurður gleymir bara einum stórum punkti. Hann hefði átt að byrja á að gera lista um sjálfan sig áður en hann hófst handa við að kasta grjóti úr glerhúsinu sínu. Að skýla sér á bak við það að hrun eins aðalsamkeppnisbankans á Íslandi hafi orsakað hrun Kaupþings ber auðvitað vitni um hversslags svínarí átti sér stað í þessum ógeðfelldu fyrirtækjum áður en hrunið átti sér stað. Maður hefði haldið að hrun eins aðalsamkeppnisaðilans hefði jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins en sökum þess hversu mikið bankarnir höfðu fjárfest í hvors annars spilaborgum hrundu auðvitað allar spilaborgirnar eins og Domino-kapphlaupið sem ég gaf Helga Hrafni bróðursyni mínum í afmælisgjöf um daginn.
Sigurður skrifar síðan undir að hann sé með meistaragráðu í hagfræði og hafi starfað í bönkum í Evrópu um tveggja áratuga skeið. Mér er spurn: Við hvaða háskóla tókst þessum vanvita að næla sér í meistaragráðu og hversu vitlaus getur maður verið sem vinnur í banka í 20 ár og lærir næstum ekkert sem að gagni kemur þegar harðnar á dalnum. Stundum er bara betra að þegja og láta fólk halda að maður sé vitlaus en að opna munninn (eða í þessu tilfelli skrifa grein) og sannfæra alla um hversu mikill brain-donor maður er.
Það eina sem ég er sammála Sigurði um er að auðvitað væri réttast hjá Dabba kóng að víkja - ef ekki vegna afglapa í starfi þá vegna þess að almenningur í landinu hefur ekki lengur trú á stjórn Seðlabankans. Það sama á hins vegar við um alla sem sátu í stjórnum gömlu bankanna og meginþorra þingmanna og ráðherra. Þegar allt þetta gerspillta og húðlata pakk hefur axlað ábyrgð sína get ég kannski hugsað mér að flytja heim til Íslands.

Áhugasamir geta lesið grein Sigurðar hér.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Minn bara byrjaður að muna hvað hann gefur í gjafir. Ég er svaka stolt af þér ástin mín. Það verður erfitt að flytja frá Íslandi en eins og ástandið er núna þá getur það nú bara verið jákvætt og þá auðvitað til að vera með þér. Luv Edda