9. feb. 2009

Mr. Manchester United

Það hafa margir góðir knattspyrnumenn gert tilkall til þessa titils en það er líklega enginn betur að honum kominn en Ryan Giggs. Að hugsa sér að það eru næstum 18 ár síðan hann lék sinn fyrsta leik fyrir Rauðu djöflana og hann hefur verið fastamaður í byrjunarliðinu í sautján ár. Hann sýndi það enn og aftur í leiknum í gær hvað hann er frábær leikmaður. Liðið þarfnaðist töfra til að vinna frábært lið West Ham og Giggs hristi fram úr skálminni enn eitt snilldarmarkið - og það var með hægri. Sá einhvers staðar að hann hefur ekki skorað með hægri fyrir United í 12 ár. Metin halda áfram að falla varðandi mörkin sem þeir fá á sig. Nú held ég að Van der Saar sé búinn að bæta öll möguleg met í ensku deildarkeppninni og mörg af metum Bretlandseyja. En það má ekki gleyma því að það eru fleiri sem gera það að verkum að mínir menn fá ekki á sig mörk. Vörnin er ótrúleg og í gær áttu Carrick og Scholes ekki síður heiðurinn að enn einni stórframmistöðu varnarinnar. Ótrúlegt að sjá Giggs og Scholes hokna af reynslu og virðingu hlaupa eins og fábjána á eftir hverri einustu blöðru sem kemur nálægt þeim. Liðið í ár er frábært og það sem er ennþá ánægjulegra við þessa glæsilegu frammistöðu að það eru í kringum 18 leikmenn sem hafa skilað henni. Meiðsli hafa þjakað liðið í allan vetur og samt eru þeir að spila eins og meistarar. Enda eru þeir langbestir.

Það var ánægjulegt að sjá dapra frammistöðu hinna toppliðanna. Chelsea og Arsenal náðu bara jafntefli gegn mun lakari liðum og liverpoolmenn voru ljónheppnir að fá öll stigin á móti Portsmouth. Ég held að ekkert þessara liða eigi möguleika að hirða titilinn af mínum mönnum eins og staðan er í dag.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þá Sólskerið Mr Utd jr?
Gunni

Gísli Björn Bergmann sagði...

Nei Solskjær a audvitad tilkall til thessa titils lika en af theim sem spila enn fyrir lidid i dag held eg ad Giggs se madurinn. Otrulegur.