22. des. 2003

Boltinn
Mínir menn kláruðu Tottenham í gær en tæpara mátti það varla standa. United hafði reyndar mikla yfirburði framan af og hefði átt að hafa miklu meiri forystu. Línuverðirnir veifuðu flöggunum eins og það væri 17. júní og þeir væru börn. En Tottenham náði að minnka muninn og eftir það þurfti Howard hvað eftir annað að taka á honum stóra sínum. En mínum mönnum tókst að hanga á stigunum þremur með mörkum frá O’Shea og Nistelrooy. Nú verður United á toppnum yfir jólahátíðina og því verða jólin gleðileg í ár. Það fylgir þessu hins vegar ákveðin bölvun því ef ég man rétt hefur liðið sem er efst um jól aldrei orðið Englandsmeistari síðan úrvalsdeildin var stofnuð. Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér.

Ferdinand var dæmdur sekur og ekki er ég nú hissa á því. Lengd bannsins kemur mér verulega á óvart sérstaklega í ljósi þess að leikmaður Manchester City gerði sömu mistök í vor og fékk smá sekt ef ég man rétt. Að sjálfsögðu á að dæma manninn í bann. Um það er ekki rifist held ég. Hann missti af lyfjaprófi og þrátt fyrir að hann hafi tekið prófið 36 klst seinna þá dugir það ekki til. Ég er fylgjandi þeirri stefnu að áfrýja þessum fáránlega þunga dómi og vona að hann verði styttur í svona 3ja mánaða dóm sem mér finndist sanngjarn. En nóg um það. Bíðum og sjáum hvað áfrýjunardómstóllinn dæmir eftir 3 mánuði.

Jólaprófin...
...gengu vel. Ég tók sem sé tvö verklega próf sama daginn og gekk bara vel. Framar vonum raunar í skurðlæknisfræði en ég hefði viljað fá hálfum hærra í svæfingu a.m.k. En hvað um það þá gefur þetta gengi manni byr undir báða vængi fyrir vorið. Kannski maður slái nokkrar níur af stalli sínum ef vel gengur. Vonum það.

Mamma og Pabbi
Þau kalla ekki allt ömmu sína foreldrar mínir. Þau verða sem sagt í Noregi um jólin og fóru út að morgni laugardagsins síðasta. Við Edda renndum þeim á flugvöllinn. Fyrst var planið að fara á Lancernum þeirra en fljótlega áttuðum við okkur á að á honum var enginn krókur fyrir kerru og því ekkert pláss fyrir allan farangurinn. Það var því brugðið á það ráð að fá lánaðan jeppann hjá tengdó og var það auðsótt. Við sléttfylltum síðan Terranoinn með sjö ferðatöskum sem flestar voru fullar af jólagjöfum. Síðan var tekinn með gítarinn hans pabba sem Andreas frændi minn ætlar að fá lánaðan og að lokum fékk mamma þá snilldarhugmynd að taka með sér 150 ára gömul gönguskíði til að skíða á, á meðan pabbi reynir að læra á svigskíði. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað við Edda hlógum að þeim skötuhjúum þar sem þau burðuðust með 30 kg handfarangur hvort inn í flugstöðina. Síðan þurfti pabbi reyndar að skila handfarangrinum sínum því einhver eggvopn leyndust í jólapökkum fjölskyldunnar. Hann slapp því við að bera 30 kg tösku um borð í vélina. Heppinn!!!

Jólin
Mamma og pabbi og bræður mínir ásamt fjölskyldum verða öll erlendis um jólin þannig að eins nána fjölskyldan á landinu verða Edda og sonur minn Stúdent sem dvelur hér mjálmandi á meðan mamma og pabbi eru úti. Ég nýtti mér samviskubit mömmu áður en hún fór og fékk hana til að baka handa mér uppáhaldssmákökurnar mínar og að sjálfsögðu búa til heimatilbúinn jólaís svo ég hefði eitthvað að kjammsa á um jólin.
Takk mamma, þú ert best.
Ég verð sem sagt hjá tengdó sem verður frábært fyrir utan það að ég kemst ekki í Dómkirkjuna klukkan sex af gömlum vana því Valdi tengdó er á næturvakt í slökkviliðinu og því þarf að borða snemma. Hugsa að ég fari í miðnæturmessuna í staðinn en kannski maður hlusti bara í útvarpinu einu sinni.

Engin ummæli: