Skandall #1
Niðurskurðartillögur stjórnarnefndar Landspítala Háskólasjúkrahúss eru skandall. Þeir ætla að spara á sviðum BMT með því að troða nokkrum bráðamóttökum í viðbót í húsnæði BMT í Fossvogi og er stefnan að flytja BMT barna, BMT skurðlækna og hjartamóttökuna, auk BMT kvennadeildar og geðdeildar allar þangað. Fyrir þá sem ekki vita var húsnæði BMT í Fossvogi byggt í kringum 1970 ef ég man rétt og átti þá að vera bráðabirgðahúsnæði deildarinnar. Hún er nú þegar orðin allt of þröng fyrir þá starfsemi sem þar er svo ég tali nú ekki um að bæta við 70-80 sjúklingum á dag, hið minnsta. Verst finnst mér þó að taka BMT barna úr því frábæra húsnæði sem þeir hafa og flytja það í Fossvogshjallinn. Hvað er að? Á meðan er örlitlu hlutfalli starfsfólks úr stjórnsýslu sagt upp, sennilega ekki nema 5%. Það er þó flestum starfsmönnum LSH ljóst að á því sviði er starfsfólki mjög ofaukið. Á meðan er 23 af 50 starfsmönnum rannsókna og kennslu sagt upp. Þannig að þegar fram líða stundir mun Landspítali háskólasjúkrahús reka þjónustu sína í lélegasta fáanlega húsnæði með allt of fáa heilbrigðisstarfsmenn sem ekki hefur verið kennt almennilega til verka, fleiri klukkutíma biðraðir og fáfróðar stjórnunarblókir andandi ofan í hálsmálið á þeim læknum sem enn halda starfi sínu.
Auðvitað er LSH búinn að kalla þetta yfir sig með því að eyða sýknt og heilagt peningum sem þeim voru ekki ætlaðir. Þegar allt kemur til alls eru það stjórnendur spítalans sem hafa brugðist viðskiptavinum sínum en ekki ríkisstjórnin, hvorki sú sem nú situr né aðrar sem á undan henni hafa komið.
Skandall #2
Nú er Davíð alveg að tapa sér. Leggur fyrir þingið frumvarp í skjóli einhverrar nefndar, sem tryggir honum eftirlaun þegar hann hættir næsta haust. Er ekki augljóst að allar slíkar hækkanir til alþingis- og ráðamanna eiga að fara í gegnum kjaradóm en ekki Alþingi? Man Davíð ekki stóru orðin sem hann lét falla um Kaupþing-Búnaðarbanka og ákvörðun stjórnenda þar um eigin bónusa og laun? Hann er að grafa sig ofan í sömu holu. Reyndar finnst mér þessar launakröfur alls ekkert ósanngjarnar en þær koma ekki eftir réttum leiðum. Alþingismenn og ráðherrar eiga ekki að ákveða eigin laun og kjör. Aðrir verða að gera það.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli