13. des. 2003

Er vændi glæpur?
Konur skrifa mikið um þá vá sem vændi þykir á Íslandi. Þær vilja ólmar gefa konunum sem selja sig á ólöglegan hátt, leyfi til þeirrar iðju. Þær vilja sem sé að konum sé heimilt að selja líkama sinn en hins vegar vilja þær að körlum sem kaupa þessa þjónustu sé refsað þar sem það sé svo ógeðslegt að kaupa sér hinn háheilaga líkama konunnar. Hann er engin söluvara – eða hvað?
Þessa undarlegu tillögur sínar rökstyðja konur svo með þeim undarlegu staðhæfingum að konurnar sé að gera þetta í neyð, eigi einskis annars kost. Þær hafa “leiðst” út í vændi vegna ytri aðstæðna t.d. fíknar. Ég skil samt ekki alveg hvað gerir þær þá frábrugðnar góðu strákunum sem hafa verið að ræna bankana víðs vegar um suðvesturhornið. Eru þetta ekki líka ólánssamir strákbjánar sem hafa rænt bankana til að borga skuldirnar sínar við “dílerinn”?
Að sjálfsögðu má síðan alltaf rífast um hvort vændi eigi yfir höfuð að teljast glæpur. Hvers vegna ætti að banna konum að nota líkama sinn sem atvinnutæki, fremur en nuddurum, erótískum dönsurum svo ég tali nú ekki um hnykklækna. Vissulega mundu sumir halda því fram að mikill munur sé á samræði og nuddi og get ég að nokkru leyti verið sammála því, en mér finnst það nú fyrst og fremst vera stigsmunur en ekki eðlismunur. Þegar munurinn er slíkur verðum við oft að draga mörkin í lögum. Sem dæmi mætti taka heimilisofbeldi. Það mundi ekki nokkurri eiginkonu/kærustu detta í hug að kæra manninn sinn fyrir að strjúka sér með lófanum en um leið og hann slær er um líkamsárás að ræða.
Ég er nú reyndar þeirrar skoðunnar að ef konum langar að sofa hjá körlum fyrir peninga og karlar eru tilbúnir að borga fyrir það sem hvergi í heiminum er auðveldara að fá ókeypis, þá eigi bara að leyfa þeim það, alveg eins og mér finnst bara allt í lagi að leyfa einhverjum vitleysingjum að berja hvorn annan í höfuðið ef þeir kæra sig um. Ég held þeir versni ekkert í hausnum við það. Flestir þeirra eru eins og gömul sjónvörp – myndin skýrist bara við að berja aðeins í þau.
En ég er víst kominn út fyrir efnið sem ég ætlaði að skrifa um. Mér finnst bara einfalt mál að það þarf tvo til að fremja glæpinn. Kona sem selur sig er að stuðla að glæpnum á markvissan hátt. Hún hvetur manninn til að brjóta lögin með því að bjóða sig til sölu. Ef við refsum þeim ekki líka (að því gefnu að vændi sé ólöglegt), getum við alveg eins sagt að einstaklingur sem ræður einhverja beinasna til að nauðga einhverjum sé ekki sekur því hann framdi ekki ódæðið sjálfur – hann bað bara um að það væri framið.
Mér finnst miður að sjá hvað ungar konur hafa sleppt sér í jafnréttisbaráttunni, þær heimta að lögum sé breytt sér í hag í nafni jafnréttis. Kvenréttindi og mannréttindi eru löngu hætt að vera á sömu blaðsíðu. Flestar hörðustu baráttukonur fyrir kvenfrelsi eru meira að segja farnar að ráðast að sjálfsögðum mannréttindum annarra kvenna, t.d. til ákveðinna snyrtiaðferða, á þeim forsendum að þetta sé allt runnið undan níðingshæl karlmanna. Ein þeirra heimtaði meira að segja fyrir fáeinum misserum að konum yrði meinað að raka á sér líkamshárin. Er ekki allt í lagi? Erum við ekki komin aðeins fram úr sjálfum okkur.
Ég er fylgjandi jafnrétti kynjanna en þó er ég meira fylgjandi mannréttindum og því styð ég ekki sumar aðgerðir ríkisins til að gera konur samkeppnisfærari með því að mismuna kynjunum. Slíkt ætti aldrei að líðast. Eina leiðin til að ná fram jafnrétti kynjanna er að þau hafi nákvæmlega sömu réttindi að lögum. Það er sannkallað jafnrétti.

Boltinn
Geri nú ekki ráð fyrir að lesendur hafi nennt að lesa nógu langt til að sjá þessa umfjöllun en ég er alltént mjög ánægður með mína menn í dag. Þeir kláruðu grannaslaginn í Manchester með stæl og fyrir það ber að hrósa þeim. Scholes er að koma sterkur inn á miðjuna og Ruud virðist vera að vakna af værum blundi. Vel. Áfram United.
Poolararnir halda hins vegar áfram að skíta í brækurnar sem Houllier klæðir litlu strákalingana sína í. Þeir eru orðnir svo brjóstumkennanlegir að þeir eru alvarlega að hugsa um að koma til Íslands á pre-season á næsta ári. Mér þykir nú vænt um skerið mitt en það er ekki beint vænlegt fyrir markaðsetningu stórliðs að eyða svo mikið sem klukkustund á litla skerinu. Ekki mundi ég nenna á þennan leik, sérstaklega þar sem maður þyrfti líklega að horfa upp á tvö leiðinlegustu fyrirbæri sem arkað hafa um jörðina: sigurreifa KR-inga og tapsára Poolara.

Próflesturinn kallar, lifið heil.

Engin ummæli: