Vaknaður!!!
Jæja, ég hef ekki verið sérlega duglegur að blogga svona yfir hátíðirnar en það virðist ekki hafa komið illa við kauninn á óteljandi aðdáendum mínum. Ég hef að minnsta kosti ekki haft mikinn ama af kröfum aðdáenda um fleiri færslur. En hvað um það - ég er kominn aftur hvort sem ykkur líkar betur eða verr.
Boltinn
Mínir menn hafa staðið sig vel í boltanum síðan við heyrðum síðast - reyndar náðu þeir ekki nema einu stigi í dag á móti Nývirkinu í dag en þeir eru að minnsta kosti á toppnum sem mér finnst fallegt. Í dag voru þeir ljónheppnir að ná jafntefli við Newcastle því dómarinn gerðist blindur um hríð í fyrri hálfleik þegar Howard skellti Shearer með sniðglímu í teignum. Hins vegar báru dómar hans vott um skyggnigáfu í seinni hálfleik þegar hann sá brot Silvestre eftir hornspyrnu og dæmdi því mark hans af. Enginn annar jarðneskur maður virðist hafa séð brot þarna. Réttlætinu var kannski fullnægt með jafntefli og get ég ekki sagt að ég sé mjög ósáttur við þau úrslit. Alltént hef ég ekki miklar áhyggjur af vorinu. Mínir menn eru alltaf betri seinni hlutann úr tímabilinu svo við eigum titilinn næsta vísan.
Nýr menntamálaráðherra...
...finnst mér einhver frambærilegasti stjórnmálamaður sem fram hefur komið sl. ár. Ef hún heldur áfram á sömu braut er ég sannfærður um að hún verði fyrst kvenformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún er fyrsta alþingiskonan sem er ekki þjökuð af einhverri innri minnimáttarkennd heldur krefst og á skilinn þann stall sem hún hefur unnið sér í því karlaveldi sem íslensk pólítík hefur (kannski því miður) verið. Því miður er hún ekki þingmaður míns kjördæmis.
Ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Churchill og rúmið kalla enda er morgundagurinn fyrsti dagurinn í fjögurra mánaða linnulausum próflestri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli