9. des. 2003

Ég hef...
...hef alls ekki staðið mig í blogginu síðastliðna daga og biðst ég velvirðingar á því. Ég hef verið upptekinn við ýmislegt, þ.m.t. próflestur. Ég á að fara í eitt próf nú um jólin sem er vitjun í skurðlæknisfræði og svæfingarlæknisfræði. Í rauninni eru þetta tvö próf en þau eru tekin sama daginn þannig að þetta virkar eins og eitt próf. Þetta er svo sem ekki mikill lestur heldur verður maður að tileinka sér það sem maður hefur lært á deildum og beina því í þann farveg sem kennarinn óskar. Staðreyndin er hins vegar sú að kennarar vilja oft villast út í að spyrja um það sem stendur í bókunum þannig að maður reynir að leggjast í lestur bókanna svo maður verði ekki rekinn á gat. Ég er um það bil að ljúka við svæfingarhlutann og ætla þá að snúa mér að skurðlæknisfræðinni sem ég hef reyndar lesið að einhverjum hluta. Nú verður tölvan sett á ís í 10 daga þannig að þið skuluð ekki búast við miklu af mér á þessum tíma.

Njála
Ég hefði nú geta sagt ólánssömum félögum mínum að kvikmyndin Njála sýnir ekki alla söguna heldur aðeins fyrsta hluta hennar. Þessi hluti var gerður til að kanna áhuga manna á gerð heildarinnar en einnig til að kanna hvort áhugi fjárfesta sé fyrir hendi til að kvikmynda alla söguna. Þetta hefur allt komið fram í fréttum og tilkynningum um sýningar myndarinnar þannig að ég skil ekki hvaða væl er í Skerjagarðsbóndanum, Bjúgubróðurnum og Skutlinum.

Engin ummæli: