6. maí 2009
Boltinn
Ég er í skýjunum eftir að mínir menn niðurlægðu Arsenal á Emirates í gærkvöldi. Það er auðvitað sárt að heyra það fyrir Arsenalmenn en reynsluleysið kostaði þá sætið í úrslitum. Mér finnst reyndar svekkjandi að sjá þennan Gibbs sem einhvern blóraböggul. Færið sem Park fékk var þröngt og Almunia átti að gera mikið betur að mínu mati. Og hvar var restin af vörninni? Bara á jogginu einhvers staðar við vítateigslínu. Aukaspyrnan var svo glæsileg en góður markvörður á að verja aukaspyrnu þar sem boltinn kemur í augsýn 25 m frá marki. Þriðja markið var auðvitað glæsileg skyndisókn sem erfitt er að verjast þegar liðið sækir stíft. Vítaspyrnudómurinn fannst mér harður en kannski ásættanlegur en linkindin við Adebayor fyrir sólatæklinguna rétt á eftir í engu samræmi við hörkuna í teignum. Að öðru leyti fannst mér dómarinn standa sig vel í þessum leik. Ég verð samt að vera sammála Roy Keane að ég sakna gömlu góðu daganna þegar leikir þessara liða buðu upp á slagsmál, rauð spjöld, dramatík, pizzukast og fleira. Those where the days!!!
2 ummæli:
Evra var með samantektina á hreinu að leik loknum: "Ellefu karlmenn á móti ellefu börnum. Við hverju býstu?"
-Viðar
Barca VS United í úrslitum. Það er ekki hægt að hafa það betra.
Gunni
Skrifa ummæli