6. maí 2009

Pólítík

Ekki finnst mér rauðgræna vorið lofa góðu. Flokkarnir ná ekki samkomulagi um nokkurn hlut og bjóða okkur upp á ömurlegan málefnapakka og enn síðri aðgerðapakka. Ætlum við í Evrópusambandið eða ekki? Ætlum við fyrningarleiðina eða ekki? Á að byggja Landspítala eða ekki? Á að bjarga heimilinum eða ekki? Hvað í veröldinni vitum við um hvað stjórnin ætlar að gera? Ögmundur segist ætla að vera heilbrigðisráðherra í tólf ár. Guð hjálpi íslensku heilbrigðiskerfi ef sú hótun verður að veruleika.

Engin ummæli: