Nú er ég byrjaður aftur á Ríkisspítalanum hér í Osló eftir þriggja mánaða heimsókn á Radiumsjúkrahúsinu sem er sjúkrahús fyrir framsækna og flókna krabbameinsmeðferð hér í Noregi. Þar svæfði ég sjúklinga fyrir aðgerðir sem mér skilst að séu ekki framkvæmdar víða annars staðar í heiminum. Gríðarlega áhugavert en ekki beinlínis einhverjar nýjungar svæfingalega séð aðrar en ég fékk tækifæri til að bæta hæfileikana í ómstýrðum ástungum á æðum. Vann mikið með ungum þýskum sérfræðingi sem er nágranni okkar hér úti í Bærum sem er nokkuð snjall með græjurnar og hefur kennt mér heilmikið um ómtækni.
Nú er ég hins vegar kominn á hjartasvæfinguna. Var svolítið heppinn að fá inn þar strax því venjulega er þetta einn af síðustu stöðunum sem menn fara á áður en þeir klára sérnámið en síðastliðna mánuði hefur verið frekar lítil nýliðun á deildinni þannig að við nýliðarnir fáum nokkurn veginn það sem okkur langar til. Svo eru vaktirnar skemmtilegri og lærdómsríkari.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli