17. maí 2009
Vinnan
Ég finn gríðarlegan mun á vinnuálaginu eftir að ég flutti mig aftur á Ríkisspítalann en það er bara jákvætt. Maður lærir gríðarlega mikið á stuttum tíma með því að einbeita sér svona að einu undirfagi í einu. Vaktirnar eru líka mun skemmtilegri því maður hefur eitthvað að gera. Við fáum flókin tilfelli frá öllum Noregi og sem dæmi má nefna að tveir af þeim sem ég svæfði í gærkvöldi komu með löngu sjúkraflugi. Annar frá Þrándheimi og hinn alla leið norðan úr Finnmörk. Það er áhugavert að sjá hvað skurðlæknarnir eru orðnir sérhæfðir og snjallir á sínu sviði. Heima er einfaldlega ekki nógu mikið af svona flóknum tilfellum til að menn geti orðið svona klárir. Það gerir auðvitað svæfinguna miklu þægilegri líka þegar skurðlæknirinn er snjall. Aðgerðirnar verða styttri, blæðingar minni og meðferðin eftir aðgerðina mun einfaldari. Hins vegar kemur næstum á hverri einustu vakt einhver sjúklingur á gjörgæsluna með einhvern gríðarlega sjaldgæfan sjúkdóm og maður getur alveg eytt hálfri vaktinni í að lesa sig til um tilfellin og meðferð sjúkdómanna. Gríðarlega frjótt umhverfi fyrir gjörgæslunörd eins og mig.
1 ummæli:
Sæll vertu!
Gaman að fylgjast með þér og hvað þú er að gera.
Getur þú ekki farið í spurngina keppni við hina nördana á spítalanum eins og í gamla dag ?
Kv Hjalti
Skrifa ummæli