17. maí 2009

Eurovision

Ég var að vinna í gærkvöldi og nótt og sá því ekki keppnina nema glefsur hér og þar. Horfði svo á Alexander og Jóhönnu og stigagjöfina á netinu i morgunn. Glæsileg frammistaða hjá þeim báðum og svo var stigagjöfin auðvitað aldrei spennandi. Þvílíkt burst. Jóhanna gerði eins vel og íslenskur efnahagur þoldi og getur verið virkilega stolt af frábærri frammistöðu. Ég verð að viðurkenna að ég lét hana fara í taugarnar á mér síðustu árin og fannst hún hálfgerð prímadonna án þess að hafa unnið fyrir því. Nú hefur hún þroskast bæði andlega og ekki síst hvað varðar sönginn. Það er auðvelt að hrífast af hæglátu og lítillátu fasinu og frábærum sönghæfileikunum. Hún er langt kominn með að verða mesta díva landsins. Norðmenn voru gríðarlega hrifnir af henni og fólk hefur verið að tala um hana í vinnunni alla vikuna svo það kom mér ekki sérlega á óvart að Norðmenn gæfu okkur mörg stig. Nú eru bara nokkrar mínútur í að Alexander mæti á Gardermoen og það verður spennandi að sjá hvernig móttökurnar verða hér.

Engin ummæli: