Boltinn!
Mínir menn eru aldeilis að skíta á sig í boltanum. Geta ekki einu sinni drullast til að vinna botnlið Úlfanna. Það var síðan farið á stúfanna strax eftir leik og keyptur nýr framherji, Louis Saha, franskur ólátabelgur frá Fulham. Það er svo sem ekki hægt að kvarta yfir hæfileikum drengsins en hann hefur ekki sýnt á sér skemmtilega hlið í kringum þessi viðskipti öll sömul. Sérlega óþokkalegur piltur og mér líst eiginlega ekkert á að hafa svona leikmann í mínu liði. Arsenal hefur hins vegar haldið áfram á sigurbraut fyrir utan smá misstig í deildarbikarnum í gær þegar þeir töpuðu fyrir Middlesbrough. Vonandi fara þeir að misstíga sig oftar í deildinni en þeir eru eina taplausa liðið í deildinni síðan í haust sem verður að teljast nokkuð glæsilegur árangur, ef maður lítur fram hjá því hvernig hann hefur náðst.
Idol-stjörnuleit...
...lauk sl. föstudag með sigri Kalla Bjarna ofursjóara frá Grindavík. Ég var nokkuð sáttur við þau úrslit enda búinn að halda með honum frá byrjun. Ég glápti á þetta úr öftustu sætum í stofunni hjá Ragnari rokkara en var nokkuð sáttur við kvöldið. Eftir keppni þurftum við skötuhjúin að berjast í gegnum skafla og byl til að komast heim á litla sæta Polonum okkar en það tókst. Síðan hef ég verið þjakaður af krónískum varaþurrk.
Eðalfundur Hannesar...
...var haldinn á laugardaginn og er það vel. Ætti það að vera keppikefli hvers ungs manns að sækjast eftir tilnefningu í Hannes en því miður fyrir flesta er aðeins fáum útvöldum gefið að komast í klúbbinn. Hannes er vel.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli