22. jan. 2004

EM í handbolta
Mikið hrikalega var þetta dapurt hjá okkar mönnum. .það sorglegasta við þetta allt saman er þó að við töpuðum á eigin bjánaskap og "reynsluleysi". Í stöðunni 22-20 fyrir Ísland fór Óli í 2 mínútur fyrir kjánalegt brot. Slóvenar skora úr sama skoti og brotið átti sér stað í. Við förum í sókn en missum boltann og aftur skora þeir um leið og og Guðjón Valur brýtur lítillega af sér og staðan orðin 22-22, og Guðjón fær 2 mínútur (sem var reyndar mjög harður dómur). Við tveimur færri förum í sókn og aftur missum við boltann klaufalega. Slóvenar bruna fram, Patti togar í peysu en ekki einu sinni nógu harkalega til að stöðva manninn, hann skorar og Patti fær 2 mínútur. Sem þýddi að við vorum 3 færri í a.m.k. mínútu. Á meðan á þessu stóð skoruðu Slóvenar 7 mörk á móti engu og breyttu stöðunni úr 22-20 í 22-27 sem náttúrlega á ekki að geta gerst. Þegar Íslendingar voru þrír inni á, Dagur, Snorri Steinn og Garcia að mig minnir, þá tekur Dagur þá stórundarlegu ákvörðun í upphafi sóknar að skjóta frá miðju í staðinn fyrir að róa sig aðeins og eyða tímanum sem við vorum þremur færri. Dagur er náttúrlega búinn að margsanna að hann er löngubúinn sem handboltamaður, a.m.k. í íslenska landsliðinu. Hann getur ekki rassgat og þótt hann hafi átt nokkrar ágætis sendingar í þessum leik, bar hann líka ábyrgð á því að við missum boltann klaufalega a.m.k. 5 sinnum og Slóvenar svöruðu með marki. Það er ekki nóg að leggja upp þrjú mörk ef þú gefur önnur fimm í staðinn.
Gummi Hrafnkels var heldur ekki að verja neitt í seinni hálfleik enda öll skot úr dauðafærum og kannski ekki mikið hægt að gera í því. Það er hins vegar allt í lagi að leyfa Reyni að spreyta sig aðeins Hann er nú þekktur fyrir að vera góður, maður á móti manni en ekki Gummi. Ég ætla aldrei þessu vant að hrósa Guðmundi fyrir frábæran leik því hann varði vel í fyrri hálfleik en í þeim seinni sýndi það sig að snerpan er engin og hann ver varla skot maður á móti manni. Hann er góður þegar vörnin er góð en virðist ekki með næga snerpu í svona opin færi. Ég mundi segja að Guðmundur og Dagur séu ekki lengur nógu góðir til að spila í liði á heimsmælikvarða eins og íslenska liðið er. Það má alveg fara að hleypa mönnum eins og Björgvin Gústafssyni, Loga Geirssyni og Arnóri Atlasyni í þetta núna. Gunnar Berg hefur heldur aldrei sýnt neitt með þessu landsliði og því miður held ég að Róbert Gunnarsson sé orðinn miklu betri en Robbi Sighvats sem er reyndar ágætur líka.
Niðurstaða leiksins er hinsvegar algjör dómaraskandall - þeir dæmdu engan vegin eins á bæði lið og hallaði þar mjög á okkur, sérstaklega hvað varðar 2 mínútna brottrekstra. Ég held að ég hafi talið sjö skipti þar sem þeir fóru með hendur í andlit okkar manna og aldrei fengu þeir tveggja mínútna brottvísun fyrir það. Guðjón fær síðan tvær fyrir smá snertingu í skoti þar sem maðurinn fipaðist ekki meira en svo að hann skoraði úr skotinu. Algjör skandall og það hefur sýnt sig aftur og aftur að dómarar frá Miðjarðarhafslöndum eru mjög hlutdrægir á svona mótum. Ég skil ekki hvers vegna þeir fá að dæma á þessum mótum aftur og aftur.

Lestur...
...gengur hæft en sígandi. Ég er orðinn nett stressaður og þá byrjar lesturinn að verða markviss og stígandi. Ég hef nú aðallega verið að lesa svokallaðar yfirlitsgreinar úr læknatímaritum en nú fer ég að snúa mér alfarið að bóklestri og hugsa að ég einbeiti mér að mestu leyti að einni bók en leyti út fyrir hana með aukaefni. Sjáum hvernig það gengur!

Engin ummæli: