7. feb. 2009

Vaktin
Vakt númer tvö sl. nótt. Það var dálítið að gera fram eftir kvöldi en svo róaðist það og ég náði að sofa svolítið í nótt. Nú þarf ég að hjóla heim í gríðarmiklum snjó því nú hefur snjóað næstum sleitulaust í sólarhring hér. Gröfukarlarnir hérna eru reyndar mun duglegri að moka en heima svo göturnar eru auðar mestan partinn af deginum en það verður gaman að sjá hversu oft ég dett á leiðinni heim.

Tölvan
Ég endaði með því að gefast upp fyrir Trójuvírusnum sem hefur heltekið tölvuna mína. Náði að bjarga því út úr tölvunni sem er ekki auðvelt að bæta og setja það á harða diskinn og ætla svo að fá vana menn í að strauja tölvuna þegar ég kem heim í næstu viku. Nú eru bara sex dagar þar til ég kem heim og fæ að sjá stelpurnar mínar aftur. Svo er bara að setja í gáminn og flytja út. Ekki eftir neinu að bíða held ég enda ætlar Edda að reyna að vinna eitthvað með vorinu. Planið er að hún komi til Noregs í byrjun mars en við fáum húsið afhent um mánaðarmótin febrúar/mars. Þá flyt ég sennilega út eftir með það litla sem ég á hér og reyni að fá lánaða dýnu hjá bóngóðum nágrönnum.

Boltinn
Mikilvæg þessi helgi í boltanum. Liverpool og Chelsea spila í dag og svo United og Arsenal á morgun. Mínir menn hafa oft lent í vandræðum með West Ham en oftast hefur það sloppið fyrir horn. Vonum að það verði svoleiðis á morgun. Ég held að bæði Liverpool og Chelsea tapi stigum í dag en það er kannski mest óskhyggja.

4. feb. 2009

Pólítík, húsaveiðar, boltinn o.fl.

Húsaveiðar
Við fengum húsið sem við vorum svo hrifin af. Það er 133 fm raðhús í Bærum með bílskúr og æðislegum sólríkum garði. Við erum þvílíkt ánægð með þetta allt saman. Það besta er að aukaherbergið er mjög stórt þannig að fólk þarf ekki að vera hrætt við að koma í heimsókn. Setjum inn myndir á síðuna hennar Hildar Vöku þegar við erum flutt inn.

Pólítík
Ný ríkisstjórn tekur aldeilis til hendinni. Búið að reka mann og annan strax í fyrstu vikunni og seðlabankastjórnin á leiðinni út. Ég get ekki sagt að ég sé beinlínis hissa eða ósáttur við ráðstöfunina en það verður forvitnilegt að sjá hvaða áhrif það hefur út í þjóðfélagið. Fyrstu skoðanakannanir sýna að þjóðin er ekki viss um nýju stjórnina - Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærstur og ef mér skjátlast ekki mun hann bara auka fylgi sitt á komandi mánuðum. Ekki sé ég fyrir mér að auðvelt verði að kjósa nokkurn af gömlu flokkunum nema með mikilli endurnýjun í mannskap.

Boltinn
Úrslitin um helgina voru mér að skapi. Ég hef meiri áhyggjur af Chelsea í vor en Liverpool og því er ég sáttur við sigur drengjanna frá Merseyside. Það er fínt að toppliðin tapi stigum á móti hvoru öðru. Best hefði auðvitað verið jafntefli en það var skárra að poolararnir sigruðu því þeir hafa sögu um að springa á limminu en Chelsea er yfirleitt sterkt seinni part tímabils.

31. jan. 2009

Helgarpælingar

Ég skrifaði svo mikið á fimmtudaginn að ég ætla að hafa þetta stutt í dag.

Húsaveiðar
Ég fór og kíkti á húsið sem ég sagði frá á fimmtudaginn í gærkvöldi. Þar býr Norðmaður sem er giftur kínverskri konu í nýuppgerðu endaraðhúsi. Ég varð strax stórhrifinn og við ætlum að gera tilboð á mánudagsmorgunn. Læt ykkur vita hvernig það gengur.

Pólítík
Það er grátbroslegt að fylgjast með ástandinu heima. Norðmenn hafa heilmikla samúð með okkur en það endist nú ekki lengi með þessu áframhaldi.

Hreyfing
Tók rúma 12 km á Bygdö í dag. Svolítið dapurleg frammistaða en tímarnir eru samt að skána og astminn og hnén eru að stríða mér. Líður samt vel á eftir og ætla að þrífa aðeins í dag og þvo þvotta. Svo er stefnan sett á að taka annað hvort stóran hjólahring eða 15-18 km hlaup á morgun. Sjáum í hvernig stuði ég er.

29. jan. 2009

Langt síðan síðast

Það er heldur betur búið að gerast ýmislegt síðan ég settist síðast niður til að blogga.

Húsnæðisleit
Ég er búinn að vera á fullu að skoða hús. Skoðaði tvö á fimmtudaginn fyrir viku eins og ég hef áður sagt frá og skoðaði síðan eitt mjög stórt og flott raðhús á mánudag og síðan þrjár íbúðir í gær. Við vorum eiginlega búin að ákveða að bjóða í raðhúsið sem mér fannst svo fínt fyrir helgi en í morgunn áður en ég sendi tilboðið ákvað ég að kíkja einu sinni enn á finn.no og athuga hvort eitthvað hefði bæst við og þá var húsið sem við erum búin að vera að leita að komið á netið. Við erum þvílíkt spennt og ég er að fara að skoða á morgun. Ef allt gengur upp þá ætti þetta að vera klappað og klárt um leið og ég fæ kennitöluna sem ég vona að verði á morgun eða strax eftir helgi. Skrifa örugglega um helgina hvernig þetta fer á morgun.

Stjórnmálin
Ég held ég láti vera að tjá mig um þessa fábjána sem við í sameiningu kusum öll yfir okkur í síðustu kosningum. Ég held ég láti duga að segja að ég er sannfærður um að við séum að fara úr öskunni í eldinn. Það eina jákvæða við þetta er kannski það að við fáum almennilega endurnýjun í flokkana í vor en ekki bara í Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu. Ég spái því að tíminn fram að kosningum verði litaður sömu stjórnarkreppu og Reykvíkingar þurftu að þola í kringum þarsíðustu áramót. Það verður athyglisvert að sjá hvernig Jóhanna klárar sig forsætisráðherrastólnum en hún hefur verið góður félagsmálaráðherra og líklega eini ráðherrann sem hefur gert eitthvað af viti síðan í október. Eins vil ég segja að mér finnst synd að Ágúst Ólafur skuli hverfa af þingi en mér hefur fundist gaman að fylgjast með honum og ég er viss um að ef hann nær frama í pólítík eftir endurkomuna þá mun ég hugleiða að kjósa hann. Ég lái honum þó ekki að vilja ekki taka þátt í þessum vinstri græna skrípaleik.

Fótboltinn
Mínir menn eru á rosalegri siglingu á meðan hin liðin keppast við að gera gloríur. Chelsea virðist reyndar vera að ná upp ágætis formi en ég held það sé of seint. Van der Saar og strákarnir í vörninni hafa verið frábærir upp á síðkastið og verðskulda metið sem þeir settu í fyrradag. Nefnilega að halda hreinu ellefta leikinn í röð og bæta þannig met Chelsea en auk þess hefur enginn markmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar haldið hreinu marki jafn lengi. Mér finnst samt frammistaða Michaels Carrick í síðustu leikjum standa upp úr. Frábærar sendingar hans hafa skapað ótal færi og nokkur mörk auk þess sem vinnusemin og dugnaðurinn á miðjunni skilar sér í betri varnarleik fyrir aftan hann. Scholes og Giggs hafa einnig verið magnaðir þrátt fyrir að vera komnir fast að áttræðu auk þess sem Tevez og Berbatov hafa verið baneitraðir saman frammi. Ronaldo er líka að koma til eftir að hafa farið rólega af stað í haust og hann var mjög ógnandi á móti WBA á þriðjudag. Ég held að það verði í það minnsta tveir titlar í vor með þessu áframhaldi en þeir gætu orðið fjórir.

Trójuhestur/-vírus
Ég fékk einhvern helvítis Trójuvírus í tölvuna í gær og var í allt gærkvöld að reyna að vinna bug á honum. Hann er enn að stríða mér en ég er búinn að keyra SpyBot, WindowsDefender og McAfee vírusvörnina trekk í trekk og losna alltaf við meira og meira. Held að hann hafi ekki náð að senda út tölvupósta en þið varið ykkur ef þið fáið póst frá gislibe@internet.is því það netfang nota ég sjaldan þó ég hafi það uppsett í Outlook.

Megrun
Ég er nú ekki í aktífri megrun hérna úti en hef reynt að halda áfram með heilsuátakið. Ég hef ekki getað farið eins mikið út að hlaupa og ég hefði viljað vegna eymsla í hnénu og erfiðra veðurskilyrða. Auk þess hef ég verið tvo daga í vikunni fram eftir kvöldi að skoða íbúðir. Reyni þess í stað að hjóla aðeins aukalega en ætla að reyna að hlaupa um helgina bæði laugardag og sunnudag ef ég verð í lagi í hnénu. Ég er nú samt búinn að léttast um hálft þriðja kíló síðan um áramót.

Nýr vinnustaður
Byrjaði á Radiumhospitalet á mánudaginn og líkar vel. Þarna eru framkvæmdar flestar meiriháttar krabbameinsaðgerðir í Noregi þó heilmikið sé líka gert á stóru landshlutasjúkrahúsunum. Þarna er verið að gera aðgerðir af stærðargráðu sem ég hef ekki vanist heima þar sem verið er að skera í mörg líffæri í sömu aðgerð í þeim tilgangi að lækna fólk af krabbameini eða í það minnsta halda þeim að mestu í skefjum. Aðgerðirnar eru oft langar og erfiðar og algengt er að þær standi í þrjár til átta klukkustundir og stundum lengur. Ég er búinn að svæfa fyrir tvær svona risaaðgerðir alveg upp á eigin spýtur en sérfræðingur hefur verið á bak við mig ef eitthvað kemur upp á. Hér er gert ráð fyrir að maður hafi töluvert mikla reynslu og maður hefur heilmikið frjálsræði í ákvarðanatöku. Það er gert ráð fyrir að maður sé lesinn í fræðunum en síðan er manni leiðbeint ef eitthvað er ekki í samræmi við það sem viðurkennt er. Ég hef greinilega fengið góða kennslu heima á Íslandi því enn sem komið er hafa þeir verið mjög jákvæðir í minn garð sem hafa haft með mig að gera. Ég held að það verði mjög gaman að vinna þarna fyrstu mánuðina og rólega tempóið gerir það að verkum að ég get einbeitt mér að því að lesa og læra norskuna. Gat til dæmis lesið mikið í dag á milli aðgerða. Hér er líka gert ráð fyrir að þriðja til fjórða hvern föstudag eigi maður klíníklausan dag, þ.e. maður hefur engum svæfingaskyldum að gegna heldur á maður að lesa fræðin. Það er samt gert ráð fyrir að maður mæti á morgunfund en eftir hann er maður sendur á skrifstofuna að lesa. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt en heima þurfti maður yfirleitt að gera þetta í sínum eigin frítíma eða á vöktunum vegna þess hve mikið var að gera.

Heimsókn
Ég er búinn að fjárfesta í miða heim til Íslands föstudaginn þrettánda febrúar og verð heima í rúma viku. Á stefnuskránni verður að njóta tímans með stelpunum mínum og svo klára ég ferðina með brúðkaupi Vidda bjú og Jónínu. Ég er gríðarlega ánægður að geta verið með þeim þennan dag en lengi vel leit út fyrir að ég kæmist ekki. Það er aldrei að vita nema við kýlum á að pakka niður dótinu okkar þessa viku þannig að kannski verður nóg hjá mér að gera. Ef við fáum þetta raðhús sem ég er að fara að kíkja á á morgun þá er leigan á því frá 1. mars svo það verður ekki seinna vænna að drífa pökkunina af.

Verðlag
Munduð þið borga 1360 kr fyrir venjulega Big Mac máltíð eða 350 kr fyrir hálfan lítra af Pepsi Max í plasti. Ef maður umreiknar norska verðlagið yfir í íslenskar krónur er þetta verðið. Ég keypti mér t.d. pylsu, pepsi max og daim í gær fyrir 1408 kr íslenskar. Bilun. Hins vegar má hugsa það þannig að ég minnka vinnuna við mig um næstum 40% við að koma hérna út en hækka umtalsvert í launum. Auk þess fæ ég frí úr vinnunni á launum með dagpeninga til að fara á námskeið sem eru skylda í sérnáminu og fæ frí níundu hverja viku vegna áunnins frítökuréttar.

25. jan. 2009

Björgvin hættir

Það var kominn tími á að einhver ráðherra axlaði ábyrgð. Því miður held ég að þetta sé ekki gert á réttum forsendum heldur til að auka möguleika hans á að ná aftur kjöri á þing í vor. En niðurstaðan er sú sama. Ráðherra sem hefur ekki staðið sig hverfur úr embætti og gefur öðrum tækifæri með hreinan skjöld. Mér finnst reyndar góður leikur hjá honum að losa sig við stjórn Fjármálaeftirlitsins í leiðinni. Það verður kannski til þess að fólkið í landinu fær smá tiltrú á stjórn fjármálalífsins í landinu.

Útihlaup

Dreif mig loksins út að hlaupa en ég hef ekki farið í níu daga vegna annríkis og veðráttu. Það var fínt. Fór 15,8 km á mjög rólegu tempó og kíkti aðeins á leiðina í vinnuna á nýja staðnum. Sýnist að ég verði að fara einhverjar krókaleiðir og legg snemma af stað í fyrramálið til öryggis. Þetta eru rúmir 6 km svo það er eins gott.

Eagle Eye

Það endaði með því að ég horfði á aðra mynd í gærkvöldi áður en ég fór að sofa. Það var Eagle Eye sem ég hafði aldrei heyrt um en sá ágæta dóma um hana á netinu og ákvað að kíkja á hana. Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast og myndin kom mér skemmtilega á óvart. Hún er reyndar svolítið langsótt pæling en hasarmyndir eru það nú oft. Spennan er fín allan tímann en plottið svolítið augljóst. Það hefur samt lítil áhrif á spennuna og myndin er bara ágætis afþreying. Ekki skemma þrusu bílaeltingaleikir.

24. jan. 2009

Brúðguminn og Stieg Larsson

Var að sjá þessa mynd í fyrsta skipti. Kom mér skemmtilega á óvart. Edda sá hana með mömmu sinni og systur svo ég fékk aldrei almennilega tækifæri til að sjá hana í bíó. Svo bauðst Fidel sem er íslenskur bæklunarlæknir sem býr hér úti til að lána mér hana og ég horfði á hana í kvöld. Ég verð nú að segja að hún kom mér skemmtilega á óvart. Langt síðan að ég hef séð svo góða íslenska mynd en Baltasar Kormákur klikkar nú eiginlega aldrei. Hilmir er auðvitað frábær leikari og síðan eru þarna aðrir stórkostlegir með: Margét, Jóhann, Ólafía Hrönn, Þröstur Leó, Ólafur Egill og Ólafur Darri öll frábær í sínum hlutverkum. Ég hef aldrei séð þessa Laufeyju Elíasdóttur áður enda ekki mikið í leikhúsum heima en hún er líka góð í sínu hlutverki. Í stuttu máli ein albesta íslenska myndin sem ég hef séð.

Annað sem ég hef gert til að stytta mér stundir hér úti og til að læra norsku er að lesa Menn som hater kvinner eftir sænska höfundinn Stieg Larsson. Hún hefur verið "þýdd" yfir á norsku og Hildur Tómasdóttir svæfingalæknir og fyrrverandi vinnufélagi minn á Svæfingunni við Hringbraut hefur margoft mælt með þessum höfundi (sem og fleiri sem hafa lært í Svíþjóð). Sá hana í hillunni á bókabúð sem ég fór inn í fyrstu vikuna mína hér og ákvað að splæsa henni á mig og hef hlakkað til að opna hana á hverju kvöldi. Ég hef reyndar ekki haft mikið þrek að lesa en hún er mjög skemmtileg og spennandi og spennan er svo stígandi að maður getur varla lagt hana frá sér. Ég er til dæmis búinn að lesa þar til ég sofna síðustu tvö kvöld og stefni á að gera það líka í kvöld. Skrifa kannski meira þegar ég er búinn með hana en get alla vega mælt með því að fólk lesi fyrstu 200 síðurnar eða svo.

Carrick jarðaði gamla félaga

Horfði á leikinn í gegnum nýju fínu nettenginguna mína. Skemmtilegur leikur með nóg af færum. Carrick átti tvær unaðslegar sendingar sem skópu mörkin. Fabio er greinilega enginn eftirbátur tvíburabróður síns Raphael og stóð sig vel vinstra megin í vörninni. Danny Welbeck var líka hættulegur úti á kantinum og það er greinilegt að Ferguson er að fá heilmikið af góðum leikmönnum úr unglingaliðinu sem standa sig þegar aðalliðið meiðist. Það er auðvitað gríðarlega þýðingarmikið fyrir framtíðina. Gott mál að vera kominn áfram í bikarnum.

Skegg

Ég ákvað að setja tvær myndir af mér hérna inn svona til að leyfa ykkur heima á Íslandi að sjá hvernig ég leit út áður en ég rakaði mig í morgunn. Var orðinn leiður á þessu enda ekki hægt að tala um að skeggrótin sé þétt hjá manni. En þetta var skemmtileg tilraun.

Erfið vika

Þó það sé rosalega gaman í vinnunni er erfitt að einbeita sér að norskunni allan daginn. Ég brenndi mig á því fyrstu tvær vikurnar að sofa ekki nóg svo ég tók þessa vikuna með trompi og passaði mig að sofa aldrei minna en 6 tíma og helst ekki minna en 8. Það þýðir að ég er kominn í bólið um tíu því ég fer á fætur kl. 5:45. Ég var samt alveg að drepast úr þreytu í gærkvöldi og sofnaði yfir bókinni sem hefur heltekið mig síðan ég kom hérna út. Vaknaði svo um miðnættið og fór úr fötunum og undir sæng. Svaf síðan eins og ungabarn til kl. 10 í morgunn. Ætlaði svo að fara út að hlaupa í morgunn en það hefur snjóað svo mikið hér í nótt að það er erfitt. Stefni því á að hlaupa á morgun.

Ég fékk svo loksins netið í dag. Þeir komu með módem hérna heim á fimmtudagskvöldið en það var bilað og ég þurfti því að fara í búðina í dag til að fá nýtt. Það gekk eftir og netið virkar vel. Er að fara að horfa á Manchester United-Tottenham í bikarnum og éta piparsveinalasagna. Ætla mér að njóta kvöldsins í rólegheitum, lesa og horfa á bíómyndir.

23. jan. 2009

Kosningar?

Sá á netinu að það á að boða til kosninga í vor. Afskaplega leiðinlegar fréttir að Geir skuli vera veikur en það virðist eitthvað vera að ganga að oddvitar stjórnmálaflokka á Íslandi veikist alvarlega. Fyrst Davíð, svo Ingibjörg og núna Geir. Þrátt fyrir að ég sé ekki hrifinn af stjórnarháttum Ingibjargar og Geirs get ég ekki sagt að maður óski þeim ills. Ég læt helvítis aumingjana sem eyðileggja stemmingu mótmælanna um það. Ótrúlegt að það skuli ekki vera hægt að taka þessa fábjána úr umferð en hins vegar mjög jákvætt að friðsamir mótmælendur séu farnir að standa vörð um lögregluna og ráðamenn þegar upp úr síður. Það er greinilegt að meirihluti mótmælenda er heiðvirt fólk og forheimski minnihlutinn gerir sitt allra besta til að kasta rýrð á þau stórkostlegu mannréttindi að hægt sé að mótmæla í friðsemd. Senda þessa krakkabjálfa í sveit eða á sjóinn til að þeir læri að vinna eins og menn.

Húsaveiðar

Ég fór í gær og kíkti á tvö hús sem eru til leigu og leist mjög vel á annað. Það er reyndar ekki nema rúmir 100 fermetrar en mjög vel skipulagt á tveimur hæðum. Kannski prófum við að bjóða í það eftir helgi. Hitt var ekki eins spennandi og það leit út fyrir á netinu, klósettin ógeðsleg og þannig. Reyni örugglega að kíkja á nokkur fleiri eftir helgi en við erum svo sem ekkert að flýta okkur með þetta því það er óljóst hvenær mæðgurnar koma út. Læt vita hvernig gengur.

Á toppnum

Það hlaut að koma að því að stresskjúklingarnir frá bítlaborginni létu undan álaginu enda geta þeir ekki neitt nema í bikarkeppnum. Mínir menn komnir á toppinn þar sem þeir eiga heima og með leik til góða. Nú er bara að halda áfram þessari glæsilegu frammistöðu. Það er reyndar helmingurinn af liðinu meiddur en strákarnir sem hafa verið að spila síðustu leiki hafa staðið sig vel svo ég kvíði engu. Svo tökum við bara Tottenham í bikarnum um helgina og höldum voninni um að gera hið ómögulega lifandi - þ.e. að vinna fjóra titla í vor.

21. jan. 2009

"Mótmæli"

Nú er mér nóg boðið. Þeir kveiktu í Oslóartrénu helvítis aumingjarnir.

19. jan. 2009

Bergmann jr

Það reynist erfitt fyrir Norðmennina að takast á við að það séu tveir Bergmenn í vinnu hérna. Þeir hafa þó leyst það með því að titla mig alltaf Bergmann jr á vinnuplani dagsins. Fyrir ykkur sem eruð vel að ykkur í titlum (sem ég var ekki) þá vitið þið að junior á (í það minnsta í Noregi) við samnefndan son. Það eru því þónokkrir sem hafa spurt mig hvort ég sé í alvöru sonur Jóns Braga og ég svara því að sjálfsögðu alltaf játandi enda er hann miklu eldri en ég.

Löng helgi

Eins og þið hafið vonandi áttað ykkur á er ég ekki með veraldarvefinn heima í herbergi og verð því að notast við netið í vinnunni. Það stendur reyndar til bóta. En ég átti annars góða helgi. Var í fríi á föstudag og slakaði vel á. Tók reyndar 12,1 km hlaup út á Bygdö seinni partinn en slakaði annars á og las svolítið.

Síðan tók ég laugardaginn á langan spássirúnt um miðbæ Oslóar að leita mér að hlutum sem mig vantar í "búið". Var reyndar líka að reyna að átta mig í miðborginni og læra aðeins á hvernig almenningssamgöngur liggja hér. Annars hefur Nonni bróðir verið ótrúlega þolinmóður að kenna mér á allt hérna úti og það er algjörlega ómetanlegt enda kann ég honum óendanlegar þakkir fyrir það. Eftir spássitúrinn las ég aðeins og æfði mig á gítarinn en svo sótti Bergmann eldri mig og við fórum í matarboð til vinafólks hans. Fékk dýrindiskalkún og skemmtilegan félagsskap. Matarboðið varð hálfendasleppt því gamli þurfti að fara aðeins upp á spítala enda var hann á vaktinni. Ég fór heim og horfði á bíómyndir í tölvunni og át snakk.

Á sunnudaginn svaf ég út og vaknaði ekki fyrr en undir hádegi. Það er í fyrsta sinn síðan ég kom út sem ég vakna ekki kl. 5:42 stundvíslega. Þess má geta að ég stilli klukkuna ýmist kl. 5:45 eða 6:00 svo ekki er því um að kenna. Ég var boðinn í eftirmiðdagsbrunch hjá Viðari og Hildi úti í Bærum og fékk þá grillu í höfuðið að hjóla út eftir en það munu vera u.þ.b. 18,5 km. Ég hjólaði 22,1 km því einhverjir fullir unglingar höfðu tekið upp á því að snúa nokkrum skiltum á hjólaleiðinni þannig að ég fór oft einhverja vitleysu. En ég komst á endanum á leiðarenda en þá var farið að kyngja niður snjó. Stefnan var sett á að hjóla til baka en það snjóaði samfellt þar til ég dreif mig heim og þá var komið 20-30 cm lag af nýföllnum snjó á alla hjólastíga og traktorarnir höfðu ekki við að moka. Það var því ófært að hjóla nema niður í Sandvika þaðan sem ég tók lestina með hjólið niður í bæ. Fínn dagur en ég svaf eins og engill í nótt eftir erfiðið. Gekk síðan í vinnuna í morgunn vegna snjóþyngsla enda hélt áfram að snjóa í alla nótt.

16. jan. 2009

Boltinn

Bara svona fyrir þá sem elska fótbolta þá er ég gríðarlega sáttur við að mínir menn skuli hafa lagt Wigan að velli í vikunni. Gríðarlega mikilvægt skref í átt að Liverpool á toppnum og nú er ekki langt að bíða þar til við stingum þessa aumingja af í titilbaráttunni. Það eru svona tiltölulega auðveldir leikir framundan í deild og bikar - Bolton í deildinni á laugardaginn, svo Derby í deildarbikarnum, þá Tottenham í bikarnum, síðan heimsækjum við West Brom í deildinni og fáum svo Everton í heimsókn í deildinni. Eftir þessa leiki held ég að United verði komið á toppinn því Liverpool á þrjá Everton, Wigan og Chelsea í næstu þremur leikjum í deild, og reyndar Everton í bikarnum líka inn á milli. Þetta verður létt það sem eftir er tímabils og ég held að við tökum þrjár dollur í ár.

Vakt og vinna

Ég tók svona fylgdarvakt á miðvikudag og var í húsinu til miðnættis. Þegar ég ætlaði síðan að hjóla heim var orðið afturdekkið loftlaust. Einhverra hluta vegna hafði mér dottið í hug um morguninn að það gæti verið gott að hafa tösku með viðhaldsgræjum fyrir hjólið í bakpokanum og hún kom sér því vel strax fyrsta daginn sem ég bar hana með mér í vinnuna. Gat pumpað í dekkið og komið svo við á einni bensínstöð á leiðinni til að pumpa aftur og komst þannig heim. Ég var því ekki kominn heim í rúm fyrr en kl. 1 og þurfti síðan að vakna kl. 5:45 til að ganga í vinnuna. Ég hefði svo sem getað tekið lestina en ákvað að ég hefði gott af því að vakna aðeins eftir lítinn nætursvefn og það virkaði. Var lítið sem ekkert þreyttur í vinnunni í gær þrátt fyrir að ég vekti bara yfir einni aðgerð sem tók allan daginn.

Vaktin var annars skemmtileg og vaktavinnan snýst greinilega að mestu um það sama og heima nema það er annar reyndari deildarlæknir sem sinnir gjörgæslunni að mestu. Hér skiptist hún í nokkra hluta þ.e. intensiv avdeling og post operativ enhet. Hvort tveggja er sambærilegt við gjörgæsluna heima. IA tekur veika medicinska sjúklinga og fleira á meðan p.o. tekur þá sem koma úr aðgerðum með barkarennu (í öndunarvél) en gert er ráð fyrir að geti komist á deild daginn eftir. Almennt stoppa sjúklingarnir skemur hér á gjörgæslunni því flestar deildir eru með sína eigin hágæslu en þar fylgja svæfingalæknarnir þeim eftir með innlitum og aðstoða við hluti sem okkur eru tamir.

Vaktin sem ég geng til að byrja með er sem sagt mest skurðstofuvinna og hjálp með vandamál úti á deildum s.s. fæðingardeyfingar o.fl. En ég byrja svo sem ekki á þeim vöktum fyrr en í maí því í febrúar, mars og apríl verð ég á Radiumhospitalet sem er sérstakur hluti spítalans þar sem flestar krabbameinsaðgerðir eru gerðar og krabbameinslyfjadeildin er þar líka. Það er víst mjög gott að byrja þar því tempóið er aðeins hægara og vaktirnar rólegri þannig að maður getur lært norsku í rólegheitum og er ekki algerlega á haus á vöktunum eins og virðist vera hér á Rikshospitalet.

Eftir vinnu fórum við Nonni bróðir og fengum okkur að borða og nokkra bjóra og fórum svo til Håkons vinar hans Jóns Braga og fengum okkur nokkra bjóra með honum og Kristinu konu hans. Svo gisti ég þar því það hefði tekið óratíma að komast heim í gærkvöldi og ég var gjörsamlega aðframkominn af þreytu. Svaf eins og ungabarn í gestaherbergi hjá þeim og vaknaði svo kl. hálfníu og fékk far með Kristinu í vinnuna (hún er líka læknir á Rikshospitalet). Ákvað svo að setjast aðeins við tölvuna og vinna og blogga áður en ég fer heim að gera við hjólið.

Lítill frændi

Ég varð föðurbróðir í sjöunda skipti í á þriðjudaginn þegar Óttar bróðir eignaðist sitt fjórða barn og þriðja drenginn. Glæsilegur piltur eins og allir aðrir í minni fjölskyldu ;)