Langt síðan síðast
Nú er komin rúm vika síðan ég reit hér snilld mína síðast. Margt hefur á daga mína drifið og væri langt mál að tíunda það allt. Ætla ég þó að gera heiðarlega tilraun til þess að draga það saman í stuttu máli.
Nonni bróðir...
...hefur verið hér heima sl. viku og verður fram á helgina. Hann kom hér heim í fríi sem hann átti og leysti af svæfingarlækna á Landspítalanum í Fossvogi og við höfum því verið að vinna svolítið saman sl. daga. Það hefur verið meiriháttar gaman og þá sérstaklega að sjá að það er ekki tómt bull sem hann segir heldur er hann bara helvíti lunkinn bæði í svæfingunum og gjörgæslulækningunum. Gott að vinna með þeim gamla líka.
Steggjaveislan
Var steggjaður á laugardaginn. Ég var sóttur hingað heim um morguninn upp úr níu og það var keyrt með mig í náttfötunum suður í Sporthúsið þar sem ég átti að klæða mig í sérlega kvenlegar hlaupabuxur og bleika skyrtu. Ofan á það var síðan bætt kúrekahatti og sólgleraugum. Þannig fór ég í upphitun og loks var ég settur í body-pump tíma. Það var ekki svalt en þó tók ég helvíti hraustlega á því þó ég segi sjálfur frá. Á meðan á þessu stóð öllu saman voru drengirnir duglegir að hella í mig öli enda ekki vanþörf á því að drekka í sig kjark að láta sjá sig í þvílíkum flíkum.
Eftir Sporthúsið var farið með mig í Smáralind þar sem ég átti að spígspora um allt og árita vafasama fótboltamynd af sjálfum mér sem Halldór Benjamín hafði útbúið. Síðan var farið með mig heim til Ingvars þar sem Jóhann Páll gipsaði á mig bjórkrús og þannig mátti ég vera það sem eftir lifði dags.
Frá Ingvari lá leiðin í Ölver þar sem ég var neyddur til að syngja You'll Never Walk Alone og síðan horfðum við á upprisu Peter's Crouch. Það var ágætt, sérstaklega þar sem með í kaupunum fylgdi ágætis shittíbörger sem ég sporðrenndi ljúflega.
Eftir þetta þótti þjóðráð að fara með mig í Smáralind en nú létu þeir mála mig og ég hélt áfram að gefa fólki áritaðar myndir af mér.
Að lokum lá leiðin svo í bústað austur í Hrepp þar sem djammað var vel fram yfir miðnætti þó sumir hafi farið snemma í háttinn. Sjálfur tórði ég til tvö en þá sagði þreytan til sín.
Frábær dagur með góðum vinum og þrátt fyrir nokkrar niðurlægingar var ég ánægður með daginn. Maður hefur gott af því endrum og eins að láta eins og fífl á almannafæri. Maður tekur sjálfan sig ekki eins hátíðlega á eftir.
Brúðkaupsundirbúningur
Allt í hámarki nú. Matur, myndir, músik, föt og fleira allt að smella. Nú síðast kláruðum við gjafalistann sem verður hafður í Líf&List í Smáralind. Mjög flott búð og þjónustan þar var frábær. Mæli með henni. Síðan er auðvitað ýmislegt sem okkur langar í sem ekki er á listanum en meðal þess eru listmunir, sérstaklega málverk. Auk þess eru ýmiss rafmagnstæki sem okkur vantar en við ákváðum að leyfa fólki að hafa töluvert frjálsar hendur með því að hafa listann ekkert of langan. Mér finnst alltaf gaman að fá óvænta hluti sem ég hef ekki óskað mér.
Mínir menn að standa sig
MUFC-menn stóðu sig vel um helgina með 3-0 sigri á heimavelli gegn Portsmouth. Scholes skoraði loksins og svo settu Rooney og Ruud hann af gömlum vana. Ruud virðist búinn að finna gamla formið sitt aftur og Rooney er áfram bara jafnrosalegur og hann hefur verið. Vona að þeir haldi uppteknum hætti í Meistaradeildinni í vikunni. Það verður erfiður leikur hjá þeim á útivelli á móti Benfica en ég held að það hafist. Maður verður í það minnsta að halda í vonina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli