Bloggleti
Hef nú ekkert skrifað hér í rúma 10 daga og mér sýnist menn líka vera farnir að venja komur sínar æ sjaldnar hingað. Í það minnsta hefur hægt töluvert á teljaranum sl. daga. Kannski eru það jólin.
Jólin
Þetta voru svolítið skrýtin jól þar sem ég var að vinna bæði aðfaranótt aðfangadags og jóladags en ég var svo í fríi á jóladag sjálfan og á annan í jólum.
Á jóladag var fínt. Við kíktum á settið í Eskihlíðinni og ég fékk mér kaldan hamborgarhrygg a la mama. Hamborgarhryggurinn klikkar nú aldrei hjá gömlu og ég sat langt fram eftir degi. Á eftir kíktum við svo á tengdó í smá súkkulaði og um kvöldið var síðan jólaboð hjá foreldrum pabba og afkomendum þeirra. Það er alltaf hörkugaman, mikið af jafnöldrum mínum og mikið af skemmtilegu fólki. Við unga fólkið drógum okkur afsíðis þegar þeir eldri fóru að týnast heim og tókum í nýja Trivialið. Það gekk ágætlega en við vorum sammála um að spurningar væru rosalega misléttar eftir bunkum en vorum líka á einu máli um að það væri töluvert léttara en síðustu spil.
Á annan í jólum fórum við Edda síðan til tengdó í mat um kvöldið þar sem þau systkinin komum heim í kotið. Síðan var tekið bæði Trivial og Pictionary strákar á móti stelpum. Við slátruðum þeim tvisvar í Trivial en þær tóku okkur eins og venjulega í Pictionary. Eins og tryggir lesendur vita er listin að tapa mér ekki í blóð borin en ég tók nú reyndar tapinu í Pictionary óvenjuvel þetta árið að mati nærstaddra.
Ég hef síðan verið að vinna milli jóla og nýárs. Var á vakt á þriðjudaginn en á fimmtudaginn var síðan komið að ættarmóti Hólsfjölskyldunnar frá Patreksfirði sem haldið er á fimm ára fresti. Það var miklu meira gaman en ég þorði að vona og við vorum langt fram eftir þar.
Í kvöld var síðan tekið maraþon Axis&Allies spil heima hjá Hafsteini þar sem ég stýrði öxulveldunum gegn Hjörleifi og Hafsteini og endaði það með þrátefli þó að staða Bandamanna hafi verið sjónarmun sterkari þegar við sömdum loks vopnahlé.
Á morgunn er síðan planið að við bræðurnir verðum allir hjá gamla settinu í Eskihlíðinni en Edda ætlar reyndar að vera með systrum sínum heima hjá foreldrum sínum fram yfir miðnætti. Þetta verður í fyrsta skipti í hálft þriðja ár sem við erum allir bræðurnir á landinu í einu svo það verður örugglega meiriháttar gaman enda ætlum við okkur að sletta ærlega úr klaufunum.
Uppgjör ársins
Ætla mér að gera upp nokkur af hugðarefnum mínum á sl. ári á næstu dögum. Má þar nefna lífið og tilveruna, boltann, tónlistina, vinnuna, pólítíkina, bækurnar, hestaferðina og fleira. Hvet ykkur til að fylgjast með næstu daga. Það verður örugglega eitthvað við allra hæfi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli