20. júl. 2004

Til hamingju Gunni og Baddý!
Vona að ég skemmi ekki mikið fyrir Gunnari þegar ég óska honum innilega til hamingju með trúlofunina. Þannig var mál með vexti að Gunni og Baddý voru á leið í sumarbústað á Þingvöllum. Eitthvað þreyttist gamli maðurinn við að bera gífurlegan farangur kærustunnar í bústaðinn og þegar hann kom í dyrnar var hann svo aðframkominn að þreytu að hann hnaut um þröskuldinn.
Baddý misskildi eitthvað skriðtækni Gunnars við farangursburðinn og hrópaði upp yfir sig játandi hvaðeina. Gunni greyið gat þarna á gólfinu enga björg sér veitt enda mállaus af mæði. Baddý tók hann því á axlirnar, bar út í bíl með einhverju löggutrixi, brunaði í bæinn og handjárnaði hann áður en honum rann mæðin.
Að öllu gríni slepptu þá skilst mér að Gunni hafi kokkað bónorðið upp við rómantískar aðstæður við Þingvallavatn. Til hamingju með trúlofunina og ekki síður útskriftina úr flugumferðarstjóranáminu.

Engin ummæli: