Híhí!
Mikið rosalega var gaman að horfa á Rassenal tapa fyrir mínum mönnum í MUFC á sunnudaginn. Ég var reyndar á vaktinni en það var svo rólegt að ég sá stóran hluta af seinni hálfleik og kafla úr þeim fyrri. Ég get vel skilið að Arsenal menn séu svekktir yfir leiknum, dómarnir voru verulega vafasamir og hallaði oft á greyin úr Arsenal. Ekki hefði verið hægt að kvarta þó Rio hefði fengið rautt í fyrri hálfleik og í ljósi þess að Henry gat ekki rassgat í vörslu hans hefði það getað breytt ýmsu. Það verður hins vegar að segja að það hefði verið nokkuð harður dómur þar sem Ljungberg var ekkert með boltann, hann náði að pota honum fram hjá Rio en missti hann allt of langt frá sér þannig að raunverulega var ekki verið að ræna hann neinu færi. Ég held meira að segja að Carroll hafi haldið á boltanum þegar Ljungberg féll til jarðar en hvað um það. Ég hefði verið fúll ef þetta hefðu verið Ronaldo og Campbell hinum megin á vellinum.
Svo var brotið hjá Ruud sem var náttúrlega ljótt en það er lítið hægt að segja við því ef dómarinn sér ekki svona. Línuvörðurinn stóð þarna yfir þessu og sá ekki ástæðu til að veifa og það má heldur ekki gleyma því að Cole fór með báða fætur í þessa tæklingu svo hann er ekkert saklaus heldur. Ruud fær sennilega bann og á það skilið.
Síðan er vælið í Rassenalmönnum þar sem eru náttúrlega linustu leikmenn deildarinnar. Pires og Ljungberg fara varla inn í vítateig andstæðinganna án þess að láta sig detta og Henry reynir í hverjum einasta leik að fiska víta með því að kasta sér. Reyndi það meira að segja einu sinni á sunnudaginn. Þetta er bara það sem góðir framherjar gera, fiska víti ef varnarmenn gera þau mistök að dangla til þeirra fæti. Hins vegar var United hins vegar rænt víti stuttu seinna þegar Cole straujaði Ronaldo. Ekki heyrði maður Wenger kvarta undan lélegri dómgæslu þá. Svo lýsir það náttúrlega þessum villimönnum í Arsenal hvernig þeir létu inni á göngunum eftir leikinn. Þar fór víst englabarnið Henry fremstur í flokki þeirra sem skvettu súpu á Ferguson eftir leikinn. Mjög vönduð framkoma. Þeir sanna þarna enn og aftur hversu miklir hálfvitar þeir eru.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli