1. jún. 2009
Stieg Larsson
Var að ljúka við síðustu bókina í þríleiknum um Lisbeth Salander, Mikael Blomkvist, Eriku Berger og félaga. Þvílíkur spennusagnahöfundur. Frábærar bækur sem ég get mælt með. Það er samt merkilegt eftir því sem maður les lengra hvað er mikið til í því að Lisbeth og Mikael eigi fyrirmyndir sínar í Línu Langsokk og Kalla Blomkvist. Snilldarleg persónusköpun og spenna frá upphafi til enda. Góð leið til að læra nýtt tungumál. Hefur hjálpað mér mikið við að læra hversdagsnorsku.
1 ummæli:
ég er bara búin með fyrstu bókina en mér finnst hún algjör snilld. Er að draga það að byrja á næstu því ég er alveg hrikaleg þegar ég byrja á svona bókum.... verð að klára þær í einni bunu. Ég las fyrstu bókina á einum degi þegar ég var að bíða eftir dótturinni.... ekki gott ef ég get svo ekki sinnt henni þegar ég er að lesa hinar ;). Það verður að stíla inn á það e-rn daginn sem Gunni er heima
Skrifa ummæli