21. okt. 2007
Tapsár?
Það eru margir sem halda því fram að ég sé óvenju tapsár. Ég hef lengi reynt að halda því fram að það sé ekki alveg rétt. Ég sé bara keppnismaður og kunni reglurnar og þar fram eftir götunum. Nú er ég hins vegar endanlega sannfærður. Ég er nefnilega svo rosalega tapsár að það getur vakið mig af draumi. Á aðfaranótt fimmtudagsins vaknaði ég með andfælum vegna þess að verið var að vinna mig í spili sem ég kunni ekki almennilega reglurnar í. Og viti menn. Haldiði ekki að Viðar hafi verið að kenna mér þetta fáránlega spil. Alltaf sama fólkið sem vekur upp í mér mínar verstu tilfinningar tengdar spilum. Magga mágkona, Kata svilkona og Viðar Pálsson.
2 ummæli:
Hahahaha við erum nú bæði mjög tapsár Gísli minn, alltaf gaman að því þegar við spilum á móti hvort öðru ;)
Grenjuskjóða.
Skrifa ummæli